Hópsmit hjá andstæðingum Alfreðs á HM Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. janúar 2021 13:30 Grænhöfðaeyjar eru nýliðar á HM í handbolta. ihf Sjö leikmenn karlalandsliðs Grænhöfðaeyja í handbolta eru með kórónuveiruna. Liðið er á leið á HM í Egyptalandi þar sem það er í riðli með strákunum hans Alfreðs Gíslasonar í þýska landsliðinu.
Lið Grænhöfðaeyja var í æfingabúðum í Portúgal þegar kórónuveirusmitin greindust. Í kjölfarið var æfingum hætt. Þeir eru þó einkennalausir. Liðið er nú í einangrun í borginni Nazaré og bíður eftir því að komast í aðra skimun. Þeir leikmenn sem greindust með veiruna ku vera einkennalausir. Grænhöfðeyingar eiga að halda til Egyptalands á morgun en fyrsti leikur þeirra á HM er gegn Ungverjum á föstudaginn. Á sunnudaginn mæta Grænhöfðaeyjar svo Þýskalandi sem Alfreð stýrir. Síðasti leikur grænhöfðeyska liðsins í A-riðli er svo gegn Úrúgvæ eftir viku. Kórónuveiran hefur sett strik í reikning margra þátttökuliða á HM. Ekkert þeirra hefur þó farið jafn illa út úr henni og Bandaríkin en átján leikmenn liðsins eru með veiruna. Grænhöfðaeyjar unnu sér þátttökurétt á sínu fyrsta heimsmeistaramóti með því að vera meðal sjö efstu liða á Afríkumótinu í fyrra. Fyrsta varaþjóð inn á HM í Egyptalandi er Norður-Makedónía og Sviss önnur.
HM 2021 í handbolta Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Grænhöfðaeyjar Mest lesið Konurnar aftur fleiri og sex fædd eftir 2000: Topp tíu listinn í ár Sport Rashford á lausu yfir jólin Fótbolti Látnir æfa á jóladag Enski boltinn Óvænt úrslit á HM í pílu í kvöld Sport Beint af HM á sjúkrahús vegna sjaldgæfs taugasjúkdóms Sport Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Fótbolti „Allt er svo erfitt“ Enski boltinn Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Fótbolti Logi frá FH til Króatíu Fótbolti Salah sló þrjú met í dag Fótbolti Fleiri fréttir Viktor Gísli góður þegar Wisla Plock fór á toppinn Negla Elínar Klöru eitt af flottustu mörkum EM Kolstad vann toppslaginn Dana áberandi í síðasta leik ársins Leik Gísla og félaga í Magdeburg frestað vegna árásarinnar Rosalegur hæðarmunur á liðsfélögum íslensku strákanna Lærisveinar Guðmundar fara í frí með góðan sigur að baki Arnór frá Gumma til Arnórs Ósáttir Harðarmenn stofnuðu kröfu í heimabanka dómara Staðfesta 10-0 sigur ÍBV gegn Haukum Íslendingaliðið heldur áfram í undanúrslit Lærisveinar Guðjóns Vals úr leik í bikarkeppninni „Jólin eru ekki alveg eins afslöppuð“ Þyrfti kraftaverk til að Ómar yrði með á HM Þetta eru strákarnir sem spila fyrir Ísland á HM Snorri kynnti HM-hóp Íslands Lofaði konunni að flytja ekki til Íslands Framarar slógu út bikarmeistarana Afturelding í bikarúrslitin Dana Björg næstmarkahæst í sigri í toppslag Þórir gæti orðið þjálfari ársins í tveimur löndum „Ég er bara búinn að vera að jafna mig“ Stelpurnar hans Þóris tryggðu sér tvær milljónir hver Kvaddi á sama tíma og Þórir en sagði liðsfélögunum ekki frá því Guðmundur Bragi og félagar verða með á bikarúrslitahelginni Stjörnumenn fyrstir í bikarúrslitin Lærisveinar Gumma Gumm úr leik í bikarnum Bræðurnir góðir en Kolstad saknaði Sigvalda í tapi í Íslendingaslag Haukur og félagar unnu baráttuna um Búkarest Úrslitin í leik HK og Stjörnunnar standa Sjá meira