Skoðun

Boðar Bláfugl endalok stéttarfélaga?

Jón Þór Þorvaldsson skrifar

Þann 30. desember síðastliðinn fengu 11 flugmenn Bláfugls uppsagnarbréf frá fyrirtækinu. Þessir flugmenn eiga það sameiginlegt að vera í stéttarfélagi. Aðrir flugmenn félagsins eru gerviverktakar og halda óbreyttu fyrirkomulagi. Við uppsögn flugmannanna gaf framkvæmdastjóri Bláfugls út þá yfirlýsingu að hér eftir yrðu einungis „sjálfstætt starfandi flugmenn” starfandi hjá Bláfugli, en með því er í raun átt við gerviverktöku og félagsleg undirboð.

Kjaraviðræður hafa átt sér stað milli Bláfugls og FÍA undanfarna mánuði en fyrr á árinu hafði kjarasamningur flugmanna verið framlengdur vegna Covid-19. Gangur í viðræðunum var góður og komu uppsagnir bæði flugmönnum og FÍA verulega á óvart þar sem Bláfugl, sem eingöngu flýgur með frakt, hefur hagnast vel í heimsfaraldrinum.

Styðja SA uppsagnir vegna stéttarfélagsaðildar?

Með uppsögninni er brotið gróflega gegn ákvæðum kjarasamnings sem er í gildi og er undirritaður af báðum aðilum. Samtök atvinnulífsins hafa setið í samninganefnd við FÍA fyrir hönd Bláfugls og virðast styðja aðgerðir félagsins.

Afstaða samtakanna kemur verulega á óvart, sérstaklega í ljósi þess að SA starfar samkvæmt sáttmála Sameinuðu þjóðanna um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja og er fulltrúi Íslands á þeim vettvangi. Er það virkilega svo að SA samþykki þau vinnubrögð fyrirtækja að segja upp fólki vegna stéttarfélagsaðildar?

FÍA kallar eftir því að Samtök atvinnulífsins beiti sér gegn aðgerðum Bláfugls og stuðli að því að uppsagnir flugmanna verði tafarlaust dregnar til baka.

Gerviverktaka er ógn við flugöryggi

Flugmaður sem starfar fyrir flugrekanda getur í eðli sínu ekki starfað sem verktaki þar sem hann uppfyllir ekki lagaleg skilyrði fyrir verktöku. Verktaki sem býr við lítið sem ekkert starfsöryggi og nýtur engra félagslegra réttinda starfar undir ægivaldi verkkaupa. Hann á hvorki orlofs- né veikindarétt og stendur því uppi án greiðslna tilkynni hann sig veikan eða óhæfan til vinnu af öðrum sökum.

Rannsóknir sýna auk þess ítrekað að gerviverktaka og félagsleg undirboð eru alvarleg ógn við flugöryggi, en þar fljúga flugmenn jafnvel örþreyttir eða veikir af ótta við atvinnumissi og eða refsingar.

Bláfugl hefur notast við starfsmannaleigu sem heitir Confair Consultancy BV. Starfsmannaleiga sem er ekki, og hefur aldrei verið, skráð hjá Vinnumálastofnun eins og lög gera ráð fyrir, þrátt fyrir fullyrðingar Bláfugls um annað. Slíkt er gert til að komast hjá því að greiða skatta og launatengd gjöld, en einnig til að eiga auðveldara um vik með félagsleg undirboð sem vitaskuld eru ólögleg.

Eru dagar baráttu launafólks taldir?

Ef slík framkoma gegn launafólki og löglegum stéttarfélögum, eins og er að eiga sér stað gagnvart flugmönnum Bláfugls, er látin viðgangast er ljóst að dagar baráttu launafólks hér á landi eru taldir.

Fróðlegt verður að fylgjast með viðbrögðum þeirra sem gæta eiga hagsmuna fólksins við þessum ráðstöfunum.

F.h. stjórnar FÍA

Jón Þór Þorvaldsson

Höfundur er formaður FÍA, Félags íslenskra atvinnuflugmanna.




Skoðun

Sjá meira


×