Innlent

Stefnt að því að opna sundlaugarnar þann 18. maí

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
DJI_0177
Vísir/Vilhelm

Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, og Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, hafa orðið ásátt um að stefna að því að opna sundlaugar landsins þann 18. maí næstkomandi en með takmörkunum þó.

Sóttvarnalæknir upplýsti um þetta nú rétt í þessu á upplýsingafundi almannavarna og landlæknis vegna kórónuveirufaraldursins.

Þórólfur áréttaði að opnun sundlauganna yrði háð því hvernig framvinda faraldursins verði fram að 18. maí. Þá gat hann ekki sagt nánar til um það hvernig útfærslan verður á opnun sundlauganna en það yrði kynnt betur þegar nær dregur.

„Sennilega það sem Íslendingar þrá mest“

Aðspurður hvers vegna það væru strangari reglur í sundlaugum en til dæmis í verslunum sagði Þórólfur ástæðuna vera þá að í sundi væri mikill hópur að safnast saman á litlum svæðum, til dæmis í búningsklefum og annað slíkt.

„Þess vegna höfum við haft áhyggjur,“ sagði Þórólfur og bætti við að erfiðara væri að halda uppi lágmarksfjöldanum í sundi.

Þar sem það virðist hins vegar vera lítið samfélagslegt smit í gangi sagði Þórólfur að talið væri óhætt að létta á þessum takmörkunum.

„En líka í ljósi þess að þetta er sennilega það sem Íslendingar þrá mest, að komast í sund,“ sagði Þórólfur.

Mikilvægt að muna eftir tveggja metra reglunni

Á fundinum í dag lagði Þórólfur áherslu á að verkefninu væri hvergi nærri lokið þótt einum til tveimur köflum sé lokið þar sem faraldurinn er í rénun og samkomubanni var aflétt að hluta til í dag.

Áfram þurfi að standa vaktina og vera tilbúin að takast á við hópsýkingar sem gætu komið upp. Þá lagði Þórólfur mikla áherslu á að almenningur haldi áfram að sinna vel einstaklingsbundnum sóttvörnum, eins og til dæmis að þvo hendur og spritta.

Þá tók hann sérstaklega fram að tveggja metra reglan væri enn í gildi þótt hún gildi ekki um börn. Mikilvægt væri að reyna halda tveggja metra reglunni eins mikið og mögulegt er.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×