Frákastið sem Rodman náði ekki voru flottustu tilþrif hans með Chicago Bulls Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. apríl 2020 16:00 Dennis Rodman varð þrisvar sinnum NBA-meistari með Chicago Bulls á árunum 1996 til 1998. Getty
Frákastavélin og fimmfaldi NBA-meistarinn Dennis Rodman var í stóru hlutverki í þremur titlum Chicago Bulls liðsins frá 1996 til 1998. Í tilefni af „The Last Dance“ heimildarþáttunum þar sem Rodman kom mikið við sögu í þáttum þrjú og fjögur, þá ákvað Chicago Bulls að velja fimm flottustu tilþrif kappans í búningi Chicago Bulls liðsins. „Það verður enginn annar Dennis Rodman,“ segir í inngangstextanum á myndbandinu og það er vissulega hægt að taka undir það. Það sem vekur þó athygli að flottustu tilþrif Dennis Rodman með Chicago Bulls var frákast sem hann náði ekki. Rodman henti sér þá á eftir vonlausum bolta og úr varð ein frægasta myndin af honum í búningi Chicago Bulls. Hér fyrir neðan má sjá þessi fimm flottustu tilþrif Ormsins sem er stundum kallaður Dennis the Menace. Dennis Rodman lék með Chicago Bulls í þrjú tímabil og varð NBA-meistari og frákastakóngur deildarinnar á þeim öllum. Rodman tók alls 3036 fráköst í 199 deildarleikjum með Chicago Bulls í deild eða 15,3 að meðaltali í leik. Hann náði yfir tuttugu fráköstum í 36 leikjum og yfir tíu fráköstum í 177 leikjum með Bulls-liðinu. Það fylgir líka sögunni að Rodman tók aðeins samtals 950 skot á þessum þremur tímabilum og var því með meira en þrjú fráköst fyrir hvert skot. Á lokatímabilinu sínu með Chicago Bulls varð Dennis Rodman elsti maðurinn til að leiða NBA-deildina í fráköstum eða 36 ára og 341 dags gamall.
NBA Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Körfubolti Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Unga hjólreiðakonan látin Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Efast um dugnað og hugarfar Rashford Enski boltinn Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Fleiri fréttir Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sjá meira