Innlent

Verkfall Eflingar í Kópavogi og fleiri sveitarfélögum hefst 5. maí

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Sólveig Anna Jónsdóttir er formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jónsdóttir er formaður Eflingar. Vísir/Vilhelm

Félagsmenn Eflingar sem starfa hjá Kópavogi, Seltjarnarnesbæ, Mosfellsbæ, Hveragerðisbæ og Ölfusi samþykktu með yfirgnæfandi meirihluta að fara í ótímabundið verkfall frá og með 5. maí næstkomandi.

Er um að ræða framhald á verkfallsaðgerðum sem hófust í byrjun mars en var frestað síðar í sama mánuði vegna kórónuveirufaraldursins.

Að óbreyttu hefst verkfallið á hádegi á þriðjudaginn í næstu viku. Að því er segir í tilkynningu frá Eflingu voru 89% þeirra sem greiddu atkvæði samþykkir verkfallsboðun í grunnskólum og 88% voru samþykkir verkfallsboðun á vinnustöðum öðrum en grunnskólum.

„6% þeirra sem greiddu atkvæði voru á móti verkfallsboðun bæði í grunnskólum og á öðrum vinnustöðum. Álíka fjöldi tók ekki afstöðu. Samtals greiddu 65% þeirra sem voru á kjörskrá atkvæði.

Sveitarfélögin sem um ræðir eru Seltjarnarnesbær, Kópavogsbær, Mosfellsbæ, Hveragerðisbæ og Sveitarfélagið Ölfus. Krafa félagsmanna Eflingar sem þar starfa er að gerður verði samningur um sambærilegar kjarabætur og þær sem eru í samningum Eflingar við Reykjavíkurborg og Ríkið. Engar kröfur umfram það eru gerðar,“ segir í tilkynningu Eflingar.

Þar er jafnframt haft eftir Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formanni félagsins, að niðurstöðurnar úr atkvæðagreiðslunni séu magnaðar.

„Þær sýna ótrúlegt hugrekki, baráttuvilja og samstöðu okkar fólks. Láglaunafólk ætlar að fá viðurkenningu á því að samfélagið kemst ekki af án þeirra. Veirufaraldur eða ekki – Eflingarfólk lætur ekki kúga sig til hlýðni,“ segir Sólveig Anna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×