Erlent

New York kallar eftir hjálp

Samúel Karl Ólason skrifar
Það var fámennt á götum New York í dag.
Það var fámennt á götum New York í dag. AP/Craig Ruttle

Smituðum fjölgar hratt í New York í Bandaríkjunum en rúmlega 300 manns hafa látið lífið í ríkinu vegna Covid-19, sjúkdómsins sem nýja kórónuveiran veldur. Andrew Cuomo, ríkisstjóri, kallaði í kvöld eftir hjálp frá alríkinu og sagði embættismenn hafa vanmetið faraldurinn. Búist er við því að allt að 140 þúsund smitist á næstu vikum og að heilbrigðiskerfi ríkisins muni ekki ráða við það.

Rúmlega 52 þúsund tilfelli hafa greinst í Bandaríkjunum og tæplega helmingur þeirra í New York.

Cuomo sagði á blaðamannafundi í kvöld að ekki hefði tekist að teygja úr kúrvunni, eins og það er kallað, og að hápunkturinn yrði hærri en gert hefði verið ráð fyrir og honum yrði náð fyrr en áætlað væri.

„Við þurfum hjálp ríkisstjórnarinnar og við þurfum hana strax,“ sagði Cuomo. Ríkisstjórinn sagði einnig að fjöldi smitaðra væri nú að tvöfaldast á hverjum þremur dögum.

Borginni New York hefur svo gott sem verið lokað og samkvæmt könnun sem New York Times vitnar í, hefur einn af hverjum þremur misst vinnu vegna faraldursins eða býr með aðila sem misst hefur vinnu.

Þá hefur Hvíta húsið tilkynnt að hver sá sem fari frá New York skuli fara í tveggja vikna sóttkví.

Cuomo vandaði ríkisstjórn Donald Trump ekki kveðjurnar á fundinum í kvöld og þá sérstaklega það að New York hefði einungis fengið 400 öndunarvélar frá alríkinu. Þörf væri á um 30 þúsund vélum en í dag væru þær einungis um sjö þúsund.

Trump ítrekaði í kvöld að hann vildi létta á takmörkunum í Bandaríkjunum til að verja efnahag ríkisins. Sagðist hann vilja gera það fyrir páska, eða á þremur vikum. Hann hefur sagt að lækningin megi ekki vera verri en sjúkdómurinn og aðrir íhaldsmenn halda því fram að efnahagslegur óstöðugleiki muni til lengri tíma kosta fleiri líf en kórónuveiran.

„Yrði það ekki frábært að hafa allar kirkjurnar fullar,“ sagði Trump í umræðuþætti Fox News. „Kirkjur víðsvegar um landið verða fullar.“

Sjá einnig: Trump talar um að slaka á takmörkunum eftir að mjólkurkúm hans var lokað

Trump sagði í kvöld að ekki væri hægt að loka Bandaríkjunum. Hann gaf einnig í skyn að ríkisstjórn hans myndu ekki hjálpa tilteknum ríkjum ef ríkisstjórar þeirra væru ekki almennilegir við hann.

„Því fyrr sem við hættum þessu, því betra.“

Sérfræðingar segja að það að fella niður takmarkanir og samkomubönn fyrir páska myndi hafa slæmar afleiðingar. Cuomo virtist sammála þeim, því á blaðamannafundinum í dag sagði hann ekki hægt að setja verðmiða á mannslíf.


Tengdar fréttir

Skautahöllin í Madrid notuð sem líkgeymsla

Samþykkt hefur verið að nota skautahöll í Madrid til að geyma lík fólks sem hefur látist af völdum kórónuveirunnar á meðan á faraldrinum stendur. Útfararstjórar í borginni tilkynntu yfirvöldum í gær að þeir gætu ekki tekið við líkum fólks sem lætur lífið úr COVID-19 þar sem starfsmenn þeirra skorti nauðsynlegan öryggisbúnað.

Útgöngubann sett á í Bretlandi

Boris Johnson, forsætisráðherra Breta, kynnti í ávarpi sínu í kvöld víðtækar takmarkanir sem ætlað er að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar þar í landi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×