Lífið

Lætur ástfangna parið svífa á stefninu eins í bíómyndinni

Kristján Már Unnarsson skrifar
Úlfar sýnir hvernig persónurnar í Titanic-bíómyndinni láta sig svífa á stefninu. Skipslíkanið til hægri.
Úlfar sýnir hvernig persónurnar í Titanic-bíómyndinni láta sig svífa á stefninu. Skipslíkanið til hægri. Egill Aðalsteinsson

Módelsmiðurinn Úlfar Önundarson á Flateyri smíðar líkön af sögufrægum bátum og skipum, og ekki spillir ef þau tengjast Vestfjörðum og Flateyri. Líkanið af Titanic vekur mesta athygli.

Í þættinum Um land allt á Stöð 2 sýnir hann meðal annars hvalbát og togara, trillur, varðskip, þýska orustuskipið Bismarck og síðast en ekki síst farþegaskipið Titanic.

Líkanið sem Úlfar Önundarson smíðaði af Titanic.Egill Aðalsteinsson

Sérstaka athygli vekja smáatriðin. Þótt Úlfar hafi haft teikningar af skipinu nýtti hann sér bíómyndina frægu til að skoða einstaka hluta skipsins. 

Farþegar og áhafnarmeðlimir sjást um borð. Hann setti meira að segja ástfangna parið úr bíómyndinni, Jack og Rose, sem þau Leonardo DiCaprio og Kate Winslet, leika, á sinn stað.

Þegar grannt er skoðað má sjá ástfangna parið á stefni Titanic.Egill Aðalsteinsson

„Þau standa á stefninu. Þau urðu að fá að vera með. Svífa, eins og var í bíómyndinni,“ segir Úlfar.

Alþjóðlegt brúðusafn vekur einnig athygli okkar. Það er í Gunnukaffi sem Guðrún Bjarney Guðmundsdóttir rekur.

Guðrún Bjarney Guðmundsdóttir, eigandi Gunnukaffis, segir frá brúðusafninu.Egill Aðalsteinsson

Og fleiri söfn eru í bígerð á Flateyri. Eyþór Jóvinsson segir okkur frá snjóflóðasafni sem heimamenn vilja koma upp og hafa falast eftir varðskipinu Ægi í því skyni.

Hér má sjá myndskeið úr þættinum:


Tengdar fréttir

Prúðbúinn kaupmaður í fornri verslun selur bækur eftir vigt

Í húsi sem reist var árið 1898 á Flateyri við eina elstu götumynd Íslands býður kaupmaðurinn Eyþór Jóvinsson viðskipatvini velkomna í elstu upprunalegu verslun landsins, uppáklæddur að hætti heldri manns frá gamalli tíð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.