Lífið

Stress og geðshræring í lokaspurningunni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jón Jónsson og Bibba voru heldur betur stressuð fyrir lokaspurninguna.
Jón Jónsson og Bibba voru heldur betur stressuð fyrir lokaspurninguna. Stöð 2

Í síðasta þætti af Kviss fóru undanúrslitin fram milli Vals og FH.

Í lið FH voru þau Björg Magnúsdóttir og Jón Jónsson og í liði Vals voru þau Birna María Másdóttir og Hannes Þór Halldórsson.

Um var að ræða eina mest spennandi viðureignina og réðust úrslitin á lokaspurningunni.

Taugarnar voru heldur betur þandar þegar koma að henni en úrslitaþátturinn fer fram annað kvöld á Stöð 2. Hann verður í beinni útsendingu eftir kvöldfréttir og mætast þá lið Þróttara og liðið sem vann í undanúrslitaþættinum og má sjá það hér að neðan.

Klippa: Mikil spenna þegar í ljós kom hvaða lið færi í úrslitaþáttinn.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.