Kia kynnir nýjan og háþróaðan undirvagn fyrir rafbíla Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 7. desember 2020 07:00 E-GMP undirvagninn. Kia í samvinnu við Hyundai Motor Group kynnti í dag nýjan og háþróaðan E-GMP undirvagn (Electric-Global Modular Platform) sem er sérstaklega hannaður fyrir rafbíla. Þessi nýi undirvagn verður notaður í næstu kynslóðir rafbíla hjá samsteypunni.
Hann mun skila rafbílunum yfir 500 km drægni í fullri hleðslu samkvæmt WLTP staðli og bílarnir munu geta náð 80% hleðslu á innan við 18 mínútum með háhraða hleðslustöð. Öflugri rafbílar munu ná meiri hröðun með E-GMP undirvagninum eða úr kyrrstöðu í hundrað km hraða á innan við 3,5 sekúndum. Þeir munu ná allt að 260 km hámarkshraða, segir í fréttatilkynningu frá Öskju, umboðsaðila Kia á Íslandi. E-GMP undirvagninn með gólfi yfirbyggingar. Nýi undirvagninn mun auk þess skila rafbílunum betri aksturseiginleikum, meira öryggi og meira innanrými. Kia Motors, sem er innan Hyundai Motor Group samsteypunnar, ætlar sér að vera leiðandi í þróun rafbíla með hinum nýja E-GMP undirvagni. Kia, Hyundai og Genesis tengjast í gegnum þessa öflugu suður-kóresku samstæðu.
Vistvænir bílar Mest lesið Afstýrði vopnuðu ráni í Kópavogi: „Mér fannst ég þurfa að gera eitthvað“ Innlent Bað soninn um að halda sig í herberginu meðan árásin átti sér stað Innlent Ekkert sem bendi til að konan hafi áttað sig á ölvun ökumannsins Innlent Sorg í Mosfellsbæ eftir skemmdarverk á liðsrútunni Innlent Fundu tvö dæmi um Kjartann en samt virðist enginn hafa borið nafnið Innlent Tilbúinn að stíga til hliðar Erlent Páfinn sendir frá sér yfirlýsingu Erlent Reykjavík muni mögulega gera sérsamninga við kennara Innlent „Þá er þetta komið út fyrir öll velsæmismörk“ Innlent Reyndist vera eftirlýstur Innlent