Átján greindust með kórónuveiruna innanlands í gær Atli Ísleifsson skrifar 1. desember 2020 10:51 Sjö af þeim sem greindust voru utan sóttkvíar, en ellefu voru í sóttkví við greiningu. Vísir/Vilhelm Átján greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Sjö af þeim sem greindust voru utan sóttkvíar, en ellefu voru í sóttkví við greiningu.
Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á vefnum covid.is. Fjörutíu er nú á sjúkrahúsi vegna Covid-19 og þar af tveir á gjörgæslu. Í gær var 41 á sjúkrahúsi, þar af tveir á gjörgæslu. Sex greindust smitaðir á landamærum – tveir með virkt smit, einn með mótefni og niðurstöðu mótefnamælingar er beðið í tilvikum þriggja. 199 manns eru nú í einangrun, en fjöldinn var 187 í gær. Þá eru 689 í sóttkví í dag, samanborið við 716 í gær. Af þeim átján sem greindust í gær, greindust sextán eftir svokallaða einkennasýnatöku en tveir eftir sóttkvíar- og handahófsskimun. Nú hafa 5.413 manns greinst smitaðir af kórónuveiru frá upphafi faraldursins. Á síðunni segir að af þeim veikst hafa af Covid-19 eru 27 nú látnir, en greint var frá 27. dauðsfallinu í morgun. Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 41,5 en var 38,5 í gær. Þá er nýgengi landamærasmita nú 12,8, en var 13,1 í gær. Alls voru tekin 1.133 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær og 357 sýni á landamærunum eða í seinni landamæraskimun. Þá voru tekin 129 sýni í svokallaðri sóttkvíar- og handahófsskimun og 301 í annarri skimun hjá Íslenskri erfðagreiningu. Fréttin hefur verið uppfærð.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Viðbrögð Evrópu: „Í dag varð það ljóst að hinn frjálsi heimur þarf nýjan leiðtoga“ Erlent Selinskí mætti í viðtal hjá Fox: Ítrekaði þakklæti sitt til Bandaríkjanna Erlent Banaslys varð í Vík í Mýrdal Innlent Selenskí þakkar fjórum sinnum fyrir sig Erlent Ríkisútvarpið leggur niður störf í miðri kosningabaráttu Erlent Hvernig skiptast fylkingarnar? Innlent „Nöturlegt að horfa upp á þetta“ Innlent Sigu um borð og tóku yfir stjórn íslensks skips Innlent „Við gefumst ekki upp á ykkur“ Innlent Segir Selenskí vanþakklátan og hætta á heimsstyrjöld Erlent Fleiri fréttir „Við gefumst ekki upp á ykkur“ „Nöturlegt að horfa upp á þetta“ Utanríkisráðherra tjáir sig um hitafundinn í Washington Náttúruverndarstofnun með höfuðstöðvar sínar á Hvolsvelli „Fyrir óæft auga mætti halda að þetta væri venjulegt barn“ Banaslys varð í Vík í Mýrdal Bjarni kveður, gervigreind nýtt í barnaníð og bílastæðagjöld Gerði stólpagrín að ríkisstjórnarflokkunum Hvernig skiptast fylkingarnar? Í verkfalli sem stjórnarmaður þar til að Halla víkur Sigu um borð og tóku yfir stjórn íslensks skips Bein útsending: Landsfundur Sjálfstæðisflokksins Notuðu rafvopn til að yfirbuga ógnandi mann með hamra Veðrið hefur áhrif á landsfundargesti eftir allt saman Lítur ekki svo á að kennarar séu bundnir af kjarasamningum annarra stétta Netöryggissveitin flutt í utanríkisráðuneytið Fækkað um sex hundruð í aðgerðum MAST „Rosalega íslensk umræða“ Íslendingur handtekinn vegna barnaníðsefnis sem var búið til af gervigreind Nokkrar staðsetningar til skoðunar fyrir skóla Hjallastefnunnar Afleiðingar kjarasamnings kennara og rætt við nýjan landlækni Segir Viðskiptablaðið og Moggann ljúga upp á hann pólitískri hlutdrægni Bein útsending: Lærdómur dreginn af Covid-19 Hagræðingartillögur í yfirlestri Væri ekki óviðeigandi að þeir hvíldu saman „Hvor þeirra er líklegri til að geta skákað Kristrúnu Frostadóttur?“ Foreldrar hvattir á neyðarfundi skólans til að flytja börnin Séra Vigfús Þór Árnason látinn Landsfundur Sjálfstæðisflokksins hefst í dag „Það eru svo margir sem ekki vita hvað fatlaðir ganga í gegnum“ Sjá meira