Innlent

Bent á að leita til prests skömmu áður en æxlið fannst

Sylvía Hall og Nadine Guðrún Yaghi skrifa
Reynheiður var borin til grafar í ágúst. Sama dag var greint frá því að kona hefði greinst með ólæknandi krabbamein eftir að hafa fengið ranga niðurstöðu úr leghálsskoðun.
Reynheiður var borin til grafar í ágúst. Sama dag var greint frá því að kona hefði greinst með ólæknandi krabbamein eftir að hafa fengið ranga niðurstöðu úr leghálsskoðun. Vísir/Frikki

Lögfræðingur fjölskyldu konu, sem lést úr leghálskrabbameini í haust, hefur óskað eftir ítarlegri greiningu Landlæknis á leghálssýnum sem voru tekin hjá Krabbameinsfélaginu 2016 og 2018. Þá hefur verið kvartað undan heilbrigðisþjónustu á heilsugæslunni en heimilislæknir benti konunni í tvígang á að leita til prests réttur áður en æxlið fannst.

Sama dag og 35 ára gömul eiginkona og tveggja barna móðir var jörðuð í haust voru fréttir sagðar af mistökum við greiningu hjá Krabbameinsfélaginu sem urðu til þess að kona greindist með ólæknandi krabbamein. 

Eiginmaður og móðir konunnar ákváðu að leita til lögfræðings þar sem þau óttuðust að mistök hefðu verið gerð í hennar máli.

Hefði farið í legnám

Lögfræðingur fjölskyldunnar hefur nú fengið sjúkraskýrslu konunnar sem sýnir að hún hafi ekki verið látin vita af frumubreytingum sem greinst árið 2016.

„Eiginmaður hennar hefur sagt að ef hún hefði fengið þessar fregnir hefði hún farið í legnám,“ segir Hilma Ósk Hilmarsdóttir, lögfræðingur fjölskyldunnar. Enda hafi hún verið í áhættuhópi eftir keiluskurð árið 2009.

Þá sýna gögnin að engar frumubreytingar hafi fundist við sýnatöku árið 2018. „Mér þykir skrítið að hún sé komin með tíu sentímetra æxli rétt tæpu ári eftir að hún fer í sýnatöku og að þetta hafi verið niðurstaðan,“ segir Hilma.

Kvörtun hafi verið send til Landlæknis þar sem óskað er eftir því að sýnin frá 2016 og 2018 verði rannsökuð ítarlega.

Lögfræðingur fjölskyldunnar telur lög og siðareglur hafa verið margbrotnar.Vísir

Blæddi nánast út á gólfinu heima

Af sjúkragögnunum sést einnig að Reynheiður hafði leitað til heimilislæknis í tvígang vegna vanlíðan mjög skömmu áður en henni blæddi nánast út á gólfinu heima hjá sér. Hún var greind með andlegt álag og ráðlagt að leita til prests.

„Það er ofsalega skrítin greining hjá lækni þegar hún leitar í tvígang með viku millibili. Hún er augljóslega ekki skoðuð og það fer ekki nein rannsókn fram á hennar líðan. Það er í rauninni farið með hana eins og hún sé þunglynd en hún hefur ekki neina sögu um þunglyndi,“ segir Hilma.

Það hefði þó engu breytt varðandi æxlið. „En það hefði verið hægt að koma í veg fyrir það að fjölskyldan hennar, eiginmaður og börn, hefðu þurft að horfa upp á hana svona veika og senda á sjúkrabíl á landspítala,“ segir Hilma.

Viðbótarkvörtun hefur verið send til Landlæknis vegna þessa.

„Við teljum að lög, reglur og siðareglur lækna hafi verið margbrotnar,“ segir Hilma.


Tengdar fréttir

And­lát 24 ára gamallar konu á borð land­læknis

Fjölskylda 24 ára gamallar konu sem lést úr leghálskrabbameini og hafði farið í skimun hjá Krabbameinsfélagi Íslands sem benti til að nánari skoðanir þyrfti að gera hefur vísað máli hennar til landlæknis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×