Innlent

Björgunar­sveitir í start­holunum fyrir ó­veðrið

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Þessi mynd er tekin í vonskuveðri sem gekk yfir landið um miðjan desember í fyrra.
Þessi mynd er tekin í vonskuveðri sem gekk yfir landið um miðjan desember í fyrra. Vísir/Vilhelm

Gular og appelsínugular viðvaranir eru í gildi vegna hríðarveðurs. Björgunarsveitarfólk Landsbjargar er vel undirbúið fyrir daginn.

Fá verkefni bárust björgunarsveitum á landinu í vonskuveðri sem gekk yfir landið í gærkvöldi og nótt að sögn Davíðs Más Bjarnasonar, upplýsingafulltrúa Landsbjargar. Eitthvað var um fok og einn bíll í vandræðum en verkefnin voru innan við tíu talsins.

Í dag er áfram varað við vondu veðri á stærstum hluta landsins. Hríðarveður er í vændum og gular og appelsíngular viðvaranir taka gildi fyrir hádegi og eftir hádegi. Veðrið verður einna verst við Faxaflóa og Breiðafjörð þar sem appelsínugular viðvaranir gilda.

Davíð segir björgunarsveitarfólk vel undirbúið fyrir daginn.

„Björgunarsveitarfólk víða um landið er mjög meðvitað um veðrið og klárt að bregðast við ef kallið kemur. En við ítrekum það við fólk þótt að þessi nótt hafi gengið vel að fólk fylgist áfram vel með upplýsingum um færð og veður og hinkri með ferðalög á meðan veðrið gengur yfir,“ segir Davíð.

Engin björgunarþyrla er tiltæk hjá Landhelgisgæslunni vegna verkfalls flugvirkja en þyrlur Gæslunnar gegna mikilvægu hlutverki í almannavarnakerfi þjóðarinnar.

Aðspurður hvaða áhrif þetta hafi á störf og undirbúning Landsbjargar, til dæmis í dag þegar búist er við miklu óveðri, segir Davíð að undirbúningur björgunarsveitanna nú hafi verið á hefðbundinn hátt.

„Ég held að það sjái það allir að þetta er alvarleg staða, eins og komið hefur fram í fjölmiðlum síðustu daga. Við undirbúum okkur í raun og veru á hefðbundinn hátt. Björgunarsveitarfólk er vel þjálfað og vel tækjum búið. Þökk sé stuðningi samfélagsins þá eru björgunarsveitir til taks allt árið um kring, allan sólarhringinn úti um allt land,“ segir Davíð og bætir við að Landsbjörg og Gæslan hafi alltaf átt í mjög góðu samstarfi.

„Svo við kjósum auðvitað að þetta leysist fljótt þannig að við getum haldið áfram þessu góða samstarfi.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×