„Þú vælir eins og stunginn grís“ Sylvía Hall skrifar 15. nóvember 2020 14:50 Kolbeinn Proppé og Brynjar Níelsson voru ekki alveg á sömu blaðsíðu hvað sóttvarnaaðgerðir varðar. Vísir/vilhelm
Fjörlegar umræður sköpuðust um sóttvarnaaðgerðir á Sprengisandi í dag þegar Brynjar Níelsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Kolbeinn Óttarsson Proppé þingmaður Vinstri grænna og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar mættu í viðtal. Þó voru þau sammála um að umræða um aðgerðir stjórnvalda væri nauðsynleg. Brynjar hefur verið framarlega í umræðunni um sóttvarnaaðgerðir undanfarna daga og vikur og ekki verið allskostar sáttur við þær. Sagði hann meðal annars í skoðanagrein hér á Vísi að áherslan hefði verið á daglegan hræðsluáróður, dreifingu á villandi tölfræði og tilraunum til að „stýra öllu, stóru og smáu, í samfélaginu“ og lýsti því yfir að meðvirkni sinni væri lokið. „Þú verður að hætta þessu fórnarlambshlutverki, það fer þér ekki vel. Þú hefur þvílíkt platform til að segja hvað sem þér sýnist og þú vælir eins og stunginn grís,“ sagði Kolbeinn og uppskar mikinn hlátur viðstaddra. „Það er nauðsynlegt,“ sagði Brynjar og hló. Aðgerðirnar „ómarkvissar og klunnalegar“ Brynjar svaraði fyrir skrif sín og sagði það vera nauðsynlegt fyrir vísindin og þekkinguna að gagnrýna og efast. Hann sé einungis að leyfa sér að efast um aðgerðirnar, enda finnist honum þær oft hafa verið ómarkvissar og klunnalegar. „Ég velti fyrir mér hvort árangurinn hafi ekki heldur verið eins og við var að búast við í þeim.“ Hann segir bæði lagalegan og vísindalegan grundvöll aðgerðanna umdeilanlegan og því bæri honum skylda til að benda á þessi sjónarmið. Meira væri hann ekki að gera. „Það er ekki þar með sagt að við hlustum ekki á vísindin, við erum alltaf að afla okkur upplýsinga og þekkingar. Við tökum auðvitað ákvarðanir á grundvelli þeirra,“ sagði Brynjar og bætti við að samfélagi yrði ekki stýrt á þann hátt. Það þyrfti að skoða heildarmyndina. „Við þurfum auðvitað að hafa allar upplýsingar og staðreyndir fyrir framan okkur. Þetta er bara gagnrýni á það að ef einhver vísindamaður eða fræðimaður segir eitthvað, þá er stjórnmálamaðurinn úti og við eigum bara að fylgja því.“ Óviss hvort Brynjar skilji framkvæmdina „Ég skil eiginlega kollega minn ekki, og það er ekkert nýtt. Það gerist nánast á hverjum degi. Óvenju slæmt núna reyndar,“ sagði Kolbeinn, samflokksmaður Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra, þegar Brynjar hafði lokið máli sínu. „Mér finnst eins og hann átti sig ekki alveg á því hvernig kaupin gerast á eyrinni: Sóttvarnalæknir leggur eitthvað til, síðan er það pólitísk ákvörðun hvort eigi að fara eftir því eða ekki.“ Kolbeinn benti á að stjórnmálamennirnir bæru ábyrgð á ákvörðununum. Þannig hefði það verið allt frá fyrsta degi. Það væri því rangt af hálfu Brynjars að segja sóttvarnayfirvöld stýra landinu því þegar allt kæmi til alls væri þetta á endanum ákvörðun heilbrigðisráðherra. „Framan af vorum við öll meira eða minna gríðarlega ánægð með þá ákvörðun. Við börðum okkur dálitið á brjóst hér að Ísland væri heppið að eiga stjórnmálamenn sem færu eftir tillögum sóttvarnayfirvalda, öfugt við til dæmis Bandaríkin og þá nefndu menn oft Bretland í þessari umræðu í vor. Það breytir engu um það að hver einasta ákvörðun sem hefur verið tekin er ákvörðun stjórnmálamanna“ „Ertu þá ekki bara ánægður?“ Kolbeinn ítrekaði að það væri í höndum stjórnmálamannanna að taka ákvarðanir. Það væri þó ekkert óeðlilegt að þeir myndu fá tillögur frá sérfræðingum í þeim efnum og færu eftir þeim. Fjölmörg dæmi um slíkt væri innan stjórnsýslunnar, til að mynda varðandi við úthlutun kvóta. „Ég er bara að tala um vísindin. Þú ert að blanda einhverju ólíku saman,“ sagði Brynjar þá. „Ég er bara að segja að vísindin eru eitt, samfélagið er ekki vísindaleg úrlausn en við notum auðvitað þekkingu til þess að taka bestu ákvarðanirnar. Það erum við sem tökum ákvarðanirnar, ekki Þórólfur eða Alma.“ „Alveg eins og hefur verið frá fyrsta degi,“ sagði Kolbeinn þá. „Ég hef aldrei sagt annað heldur,“ svaraði Brynjar og Kolbeinn spurði: „Ertu þá ekki bara ánægður? „Jújú, ég er bara ekkert ánægður með ákvarðanirnar allar.“ Þorgerður sagði umræðurnar lýsandi fyrir þær sem hafa átt sér stað á þingi.Vísir/Vilhelm Lítið frumkvæði frá þeim sem efast mest Þorgerður Katrín fékk loks orðið og sagði orðaskipti Brynjars og Kolbeins vera einkennandi fyrir umræðurnar á þinginu undanfarna daga. Deilurnar virtust mestar milli stjórnarliða en ekki á meðal stjórnarandstöðunnar. „Það er allt að því að við í stjórnarandstöðunni getum hallað okkur aftur, stjórnarflokkarnir eru svolítið að kýta og karpa,“ sagði Þorgerður. Hún bætti þó við að hún væri sammála með Brynjari varðandi mikilvægi þess að ræða aðgerðirnar og sagði Kolbein vera á sama máli. Hún benti á að Viðreisn hefði kallað eftir umræðu um sóttvarnaaðgerðir á þinginu og þær hafi farið fram í síðustu viku. „Ég saknaði þess kannski að þetta frumkvæði hefði komið frá þeim sem voru hvað mestir í efasemdunum útaf þessu.“ Að hennar mæti væri ekki einungis eðlilegt að þingmenn ræddu hvað mætti betur fara, heldur væri það jafnframt skylda þeirra. „Eftir stendur að við getum haft ákveðna skoðanir og það er ekki óeðlilegt, við eigum að kalla þær fram. Við erum með skoðanir á því til dæmis hvort að það sé rétt að hleypa fólki í það að skoða kreditkortafærslur og svo framvegis. Þetta eru eðlilegar spurningar sem við lýðræðislega kjörnir þingmenn eigum að setja fram.“
Alþingi Sprengisandur Samkomubann á Íslandi Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Tengdar fréttir „Menn hljóta að sjá hversu alvarlegt ástand þetta er“ Ólafur Þór Gunnarsson, öldrunarlæknir og þingmaður Vinstri grænna, telur að fyrsta markmið stjórnvalda í kórónuveirufaraldrinum eigi að vera að vernda líf og heilsu fólks. Hann telur augljóst hversu alvarleg staða er uppi í heilbrigðiskerfinu. 10. nóvember 2020 18:08 Hættur meðvirkni með sóttvarnaaðgerðum og segir „alræði sóttvarna“ óskilvirkt Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að meðvirkni sinni með sóttvarnaaðgerðum hér á landi sé lokið. 10. nóvember 2020 07:15 Alræði Brynjar Níelsson fjallar um sóttvarnir og telur okkur sem þjóð hafa villst verulega af leið í baráttunni við veiruna; meðalið er að drepa sjúklinginn. 9. nóvember 2020 15:08 Mest lesið Óvænt skilaboð leiddu til ferðar með syni Trumps Erlent Fíkniefnanotkun talin meginorsök banaslyss í Lækjargötu Innlent Fimm fluttir á sjúkrahús eftir rútuslysið Innlent Útsýnið úr útsýnisíbúðinni verður að engu Innlent Grunuð um að setja milljónir af opinberu fé inn á veðmálasíður Innlent Egede biðlar til Grænlendinga um yfirvegun og samstöðu Erlent Nauðsynlegt að slá ekki kynslóðaskiptum í Sjálfstæðisflokknum á frest Innlent Náðu að loka á mann sem sveiflaði hníf inn um hurð Innlent Stóru eldarnir enn hömlulausir Erlent Óttast að stóriðja spilli besta stjörnuskoðunarstað jarðar Erlent Fleiri fréttir Endurvekja Á allra vörum til að byggja nýtt Kvennaathvarf Fjölga leikskólaplássum um allt að 300 í Reykjavík Framlengir stuðningskerfi um ár en ræðst í endurskoðun Gular viðvaranir vegna hvassviðris og rigningar Fíkniefnanotkun talin meginorsök banaslyss í Lækjargötu Leikskólarýmum fjölgað og brýnt að skýra áfengislöggjöfina Stækka leikskólann Múlaborg við Ármúla Fimm fluttir á sjúkrahús eftir rútuslysið Hættir sem formaður Hagsmunasamtaka heimilanna Nauðsynlegt að slá ekki kynslóðaskiptum í Sjálfstæðisflokknum á frest Framsóknarmenn í Reykjavík vilja flýta flokksþingi Laxalús í sjókvíum smitist greiðlega í villta laxa Náðu að loka á mann sem sveiflaði hníf inn um hurð Útsýnið úr útsýnisíbúðinni verður að engu Framkvæmdir við stóran áfanga Borgarlínu á næsta leiti „Kæmi slíkt upp í Reykjavík yrði gengið fljótt til verks“ Hótel Hestheimar í bók National Georgraphic Grunuð um að setja milljónir af opinberu fé inn á veðmálasíður Hörmungar í Los Angeles og myrkur í Smyrilshlíð Nýr leikskóli rís í Elliðaárdal Slæm meðferð Bandaríkjanna á frumbyggjum vekur ótta á Grænlandi Rektor MH tekur við skólamálum borgarinnar Bíll illa farinn eftir að hafa verið ekið á vegrið Almenningur þurfi ekki að hafa áhyggjur af fuglaflensu Hækka vöktunarstig en segja kvikuhreyfingar ekki nærri yfirborði Högum þykir miður að byggingin valdi óþægindum Hollywood brennur og von á asahláku hér á landi Átta stiga hiti um helgina og varað við asahláku Beint streymi: Er Grænland til sölu? Finnar verja Ísland í fyrsta sinn Sjá meira
„Menn hljóta að sjá hversu alvarlegt ástand þetta er“ Ólafur Þór Gunnarsson, öldrunarlæknir og þingmaður Vinstri grænna, telur að fyrsta markmið stjórnvalda í kórónuveirufaraldrinum eigi að vera að vernda líf og heilsu fólks. Hann telur augljóst hversu alvarleg staða er uppi í heilbrigðiskerfinu. 10. nóvember 2020 18:08
Hættur meðvirkni með sóttvarnaaðgerðum og segir „alræði sóttvarna“ óskilvirkt Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að meðvirkni sinni með sóttvarnaaðgerðum hér á landi sé lokið. 10. nóvember 2020 07:15
Alræði Brynjar Níelsson fjallar um sóttvarnir og telur okkur sem þjóð hafa villst verulega af leið í baráttunni við veiruna; meðalið er að drepa sjúklinginn. 9. nóvember 2020 15:08