Innlent

Um 900 starfsmenn Árborgar fá 8.500 króna gjafakort

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Bæjarráð Árborgar hefur samþykkt að allir starfsmenn sveitarfélagsins fái 8.500 króna gjafakort. Ráðið mælist til þess að starfsfólk nýti inneign kortsins til að gera sér glaðan dag á sínum heimaslóðum.
Bæjarráð Árborgar hefur samþykkt að allir starfsmenn sveitarfélagsins fái 8.500 króna gjafakort. Ráðið mælist til þess að starfsfólk nýti inneign kortsins til að gera sér glaðan dag á sínum heimaslóðum. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Bæjarráð Sveitarfélagsins Árborgar hefur samþykkt að það  fé sem ætlað var til árshátíðarhalda, ásamt jólagjöf sveitarfélagsins til starfsmanna í ár  verði fært starfsfólki í formi glaðnings á úttektarkorti. Í bókun ráðsins segir að starfsfólki sé að sjálfsögðu frjálst að ráðstafa fjárhæðinni að eigin vali en bæjarráð hvetur starfsfólk til að gera sér glaðan dag á sínum heimaslóðum eftir því sem aðstæður leyfa.

Hver starfsmaður mun fá gjafakort frá Íslandsbanka að upphæð 8.500 krónur en starfsmennirnir eru rúmlega 900, sem þýðir að kostnaður við gjafakortin er tæplega 8 milljónir króna.

Í bókun bæjarráðs segir orðrétt:

„Árið sem er að líða hefur lagt þungar byrðar á mikinn fjölda starfsmanna sveitarfélagsins og hafa þeir sannarlega staðið undir þeim byrðum og í mjög erfiðum aðstæðum skilað verki sem mikill sómi er af. Þrátt fyrir að ekki sé hægt að halda árshátíð með venjubundnum hætti vill bæjarstjórn með þessu sýna þakklæti sitt og jafnframt hvetja fólk til að gleðjast í skammdeginu, stolt yfir öllum þeim góðu verkum sem unnist hafa.“

Um 900 starfsmenn vinna hjá Sveitarfélaginu Árborg, sem munu fá gjafakortið á næstu dögum, sem þakklætisvott fyrir þeirra framlag á tímum Covid-19Magnús Hlynur Hreiðarsson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×