Lífið

John Legend með hugann við Georgíu og syngur viðeigandi lag

Stefán Árni Pálsson skrifar
Legend virðist vera sáttur með stöðuna. 
Legend virðist vera sáttur með stöðuna. 

Enn er óljóst hvor vinnur kapphlaupið að Hvíta húsinu; Donald Trump eða Joe Biden en Biden stendur þó betur að vígi sem stendur.

Ekki er enn búið að lýsa sigurvegara í nokkrum lykilríkjum en Biden er með naumt forskot í Arizona og Nevada. Frambjóðendurnir eru með nánast jafnmörg atkvæði í Georgíu en Trump er atkvæðameiri í Norður-Karólínu og Pennsylvaníu. Biden hefur heldur betur sótt í sig veðrið í nótt í Georgíu og gæti að lokum haft betur í því ríki þó að Donald Trump hafi haft ágætt forskot þar um tíma.

Tónlistarmaðurinn John Legend er greinilega mjög sáttur með það enda yfirlýstir andstæðingur Donalds Trump og hefur hvatt fólk til að kjósa Joe Biden.

Hann birtir myndband af sér á Twitter þar sem hann syngur lagið Georgia On My Mind eftir Ray Charles og glottir í leiðinni eins og sjá má hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.