Bandaríkin formlega gengin úr Parísarsamkomulaginu Atli Ísleifsson skrifar 4. nóvember 2020 08:43 Donald Trump hefur losað um regluverk sem ætlað er að stuðla að aukinni umhverfisvernd. Getty
Bandaríkin eru formlega gengin úr Parísarsamkomulaginu frá og með deginum í dag. Samkomulagið er frá árinu 2015 og kveður á um skuldbindingar ríkja til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti Sameinuðu þjóðunum á síðasta ári frá ákvörðun Bandaríkjastjórnar að segja sig frá samkomulaginu. Parísarsamkomulagið kveður hins vegar á um eins árs biðtíma, ákveði ríki að segja sig frá því, og lauk honum í tilviki Bandaríkjanna í gær. Joe Biden, forsetaframbjóðandi Demókrata, hefur sagst vilja að Bandaríkin gerist aðili að samkomulaginu á ný. Hefur hann sagt ljóst að mannkyni stafi hætta af loftslagsbreytingum og að Bandaríkin hafi siðferðislega skyldu til að bregðast við. Enn er óljóst hver bar sigur úr býtum í forsetakosningunum sem fram fóru í Bandaríkjunum í gær. Trump tilkynntu um þá stefnu sína að segja sig frá Parísarsamkomulaginu árið 2017, en samkomulagið meinaði þátttökuríkjum að gera slíkt á fyrstu þremur árum eftir undirritun. Bandaríkin er það ríki heims sem mengar næstmest á eftir Kína. Í forsetatíð sinni hefur Trump margoft dregið loftslagsvísindi í efa og talað fyrir aukinni olíu- og kolavinnslu. Á sama tíma hefur hann losað um allt regluverk í Bandaríkjunum sem ætlað er að stuðla að aukinni umhverfisvernd.
Bandaríkin Loftslagsmál Forsetakosningar í Bandaríkjunum Donald Trump Mest lesið Tveir reyndust í skotti bíls Innlent Fannst hann þvingaður til að afsala sér hundinum Innlent „Ef hann hefði verið einn þá hefði þetta getað farið miklu verr“ Innlent Harður þriggja bíla árekstur á Suðurlandsvegi Innlent „Þegar hægrið fær að ráða ferðinni óheft og án alls taumhalds fer illa“ Innlent Málningu kastað og ryskingar við sendiráðið Innlent Mótmælendur hindruðu för lögreglubíls í forgangsakstri Innlent Af hverju er barnið mitt alltaf að segja Skibidi toilet? Innlent Svandís og Guðmundur Ingi nýir leiðtogar Vinstri grænna Innlent Erfitt að setja tölu á hve margir vilji stjórnarslit Innlent Fleiri fréttir Engum verði vísað út við myndbirtingu Minnst sextán látnir í aurskriðum í Bosníu og Hersegóvínu Einn af leiðtogum Hamas lést í loftárás á Líbanon Minnst sjötíu í valnum eftir árás glæpamanna Versnandi ástand í Pokrovsk Trump sagði Pence að hann yrði fyrirlitinn og talinn heimskur Gerðu árás á landamærastöð þar sem tugir þúsunda hafa flúið Obama leggur land undir fót fyrir Harris í næstu viku Sýknaðir af alvarlegustu ákærunum vegna dauða Nichols Hvaldímír drapst af völdum bakteríusýkingar 21 árs konu bjargað á Gasa tíu árum eftir að henni var rænt Arftaki Nasrallah sagður drepinn í árás Ísraela Vita um tvo Íslendinga í Líbanon Segja íbúum tuttugu og fimm þorpa að flýja Hringmyrkvi sýnilegur yfir syðsta oddi Suður-Ameríku Fyrsta heimsókn Rutte til Úkraínu Íhuga árásir á olíuvinnslur og kjarnorkustöðvar í Íran Nýnasisti sagðist ekki hafa stungið börn vegna rasisma Rússar reyndu að skjóta niður ísraelskar stýriflaugar Slökkva á tækjum næstvíðförlasta geimfarsins til að lengja líf þess Lét sér fátt um finnast að Pence væri í hættu Forsetinn neitar að undirrita lög gegn hinsegin fólki Tekur einarða afstöðu með þungunarrofi og sjálfræði kvenna Læknir játar sök í tengslum við dauða Matthew Perry Starfsfólk farið að þjást af „laxaastma“ Fimm látnir í Beirút eftir loftárás á heilsugæslu Maðurinn á bak við Tripp Trapp-stólinn látinn Verulegar líkur á að stórt stríð brjótist út í Miðausturlöndum Þrír ungir Svíar handteknir vegna sprenginganna í Kaupmannahöfn Watson skal áfram sæta gæsluvarðhaldi Sjá meira