Maður handtekinn í tengslum við árásina í Nice Atli Ísleifsson skrifar 30. október 2020 08:52 Alls dóu þrír í árásinni í og við Notre Dame kirkjuna í frönsku borginni Nice í gærmorgun. AP
Lögregla í Frakklandi hefur handtekið 47 ára karlmann vegna gruns um að tengjast hryðjuverkaárásinni í Nice í gær. Er hinn handtekni grunaður um að hafa aðstoðað hryðjuverkamanninn við undirbúning árásarinnar. Franskir fjölmiðlar segja manninn hafa verið handtekinn í gærkvöldi, en hann á að hafa verið í samskiptum við hinn 21 árs gamla árásarmann daginn fyrir árásina. Árásarmaðurinn er grunaður um að hafa drepið þrjá í og við Notre Dame kirkjuna í Nice í gærmorgun, en hann liggur nú sjálfur á sjúkrahúsi eftir að hafa við skotinn af lögreglu. Í átökum við lögreglu á maðurinn að hafa hrópað „allahu akbar“, sem þýðir „guð er mikill“. Var hann með fjölda hnífa og eintak af kóraninum í fórum sínum. Árásarmaðurinn er frá Túnis og á nýlega að hafa komið til Frakklands frá ítölsku eyjunni Lampedusa. Hæsta viðbúnaðarstigi vegna hryðjuverkahættu hefur verið komið á í Frakklandi í kjölfar árásarinnar.
Frakkland Mest lesið Vaktin: Forsetakosningar í Bandaríkjunum Erlent Íslenskir Trumpistar fylgjast spenntir með skammt frá Trump sjálfum Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Gætum þurft að bíða í nokkra daga ef ekkert óvænt gerist Erlent Grátbiðja deiluaðila að finna lausn Innlent Flugslysið sem skók þjóðina og aldrei munu fást svör við Innlent Fleiri tilkynningar um týnd ungmenni en allt árið í fyrra Innlent Afskipti af bifreið endaði með handtöku fjögurra manna Innlent Lausir hundar hafi drepið fleiri kindur Innlent Formaður Kyndils lést í slysinu við Tungufljót Innlent Fleiri fréttir Gætum þurft að bíða í nokkra daga ef ekkert óvænt gerist Netanjahú rekur varnarmálaráðherrann Spurning hvort hræðsluáróður eða jákvæðni nái betur til kjósenda Baráttan um Bandaríkin: Hvað gerist eiginlega í nótt? Mikill viðbúnaður vegna ásakana um svindl í lykilsýslu Arizona Dæmdur í fangelsi fyrir kóranbrennur Vaktin: Forsetakosningar í Bandaríkjunum Bandaríkjamenn ganga að kjörborðinu Útsendarar GRU sagðir hafa sent eldsprengjur með flugvélum Sigurvegarar í keppni Musks ekki valdir af handahófi Pennsylvanía nauðsynleg til að tryggja sigur Réttað yfir átta vegna afhöfðunar kennara í París Rauð veðurviðvörun og 80 flugferðum aflýst eða frestað „Já, maður! Að sjálfsögðu vinnur hann þetta!“ Evrópusamstarf verður að Evrópuvandamáli Forseti Moldóvu hélt velli þrátt fyrir ásakanir um rússnesk afskipti Á lokametrunum í kosningabaráttu Repúblikanar önugir yfir óvæntu atriði Harris í SNL Grýttu drullu í Spánarkonung Skyggnst inn í hugarheim stuðningsmanna Trump Óvænt forskot Harris í Iowa sætir tíðindum Hefja bólusetningar við lömunarveiki á ný Sendir tíu þúsund manna herlið til Valensía Ostaþjófnaður skekur heim matgæðinga: „Hver vill svona mikinn ost?“ „Margt að óttast“ en ameríski draumurinn lifir Badenoch nýr leiðtogi Íhaldsflokksins „Ég myndi frekar kasta mér fram af kletti en að kjósa Donald Trump“ Létust þegar skyggni hrundi ofan á þau í Serbíu Rúmlega tvö hundruð látnir eftir flóðin Kim hafi stutt Rússa frá upphafi „heilags stríðs“ þeirra Sjá meira