Erlent

Reyna að stöðva land­nám asísku risa­geitunganna í Was­hington

Atli Ísleifsson skrifar
Asíski risageitungurinn er mjög ágeng tegund sem getur eyðilagt heilu býflugnabúin á innan við klukkustund.
Asíski risageitungurinn er mjög ágeng tegund sem getur eyðilagt heilu býflugnabúin á innan við klukkustund. AP

Asíski risageitungurinn hefur nú fundið sér leið alla leið til Bandaríkjanna og hafa fulltrúar yfirvalda í Washington-ríki á vesturströnd landsins unnið að því síðustu daga að eyða dýrunum með aðstoð gildra, ryksuga og staðfestningartækja. Er þetta gert fyrst og fremst til að vernda hunangsbý landsins.

Þetta er í fyrsta sinn sem asískir risageitungar (Vespa mandarinia) nema land í Bandaríkjunum og hafa komið upp búi svo vitað sé.

Um leið og ábendingar komu inn á borð landbúnaðaryfirvalda í Washington-ríki um asíska risageitunga var hafist handa við að leggja fyrir þá gildrur.

Þegar búið var að ná þremur geitungum lifandi var litlum staðsetningarbúnaði komið fyrir á þeim og þeim sleppt lausum. Þannig var hægt að finna bú þeirra.

Asíski risageitungurinn er mjög ágeng tegund sem getur eyðilagt heilu býflugnabúin á innan við klukkustund. Alls er nú búið að ná 98 risageitungum hið minnsta og hafa þeir verið sendir til rannsóknar.

Tegundin er langalgengust í fjalllendi Japans, en hefur þó dreift sér víða.AP

Á vef Vísindavefs Háskóla Íslands segir að náttúruleg heimkynni asíska risageitungsins séu á heittempruðum svæðum í austurhluta Asíu, nánar tiltekið í Japan, Kína, í Prímorskí-héraði Rússlands og á Kóreuskaga. Auk þess teygi hann útbreiðslu sína suðvestur eftir Asíu, inn í þétta skóga Indókína og Taívan. Tegundin er þó langalgengust í fjalllendi Japans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×