Viðskipti innlent

Samherji vill breyta álveri í laxeldisstöð

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Frá Helguvík þar sem til stóð að reisa álver. Það virðist úr sögunni.
Frá Helguvík þar sem til stóð að reisa álver. Það virðist úr sögunni. Vísir/Vilhelm

Norðurál og Samherji eru sögn hafa undirritað viljayfirlýsingu um kaup síðarnefnda fyrirtækisins á lóð og byggingum Norðuráls við Helguvík.

Þetta kemur fram í Markaðinum, fylgiriti Fréttablaðsins í morgun. Þar segir að Samherji hafi í hyggju að hefja laxeldi á landi og nýta til þess byggingarnar í Helguvík, en þeim var upprunalega ætlað að hýsa álver Norðuráls, sem aldrei komst í gagnið eins og frægt er orðið.

Í blaðinu segir að frumathugun sé þegar hafin á aðstæðum en alls eru byggingar Norðuráls á svæðinu 23 þúsund fermetrar og lóðin er um 100 hektarar. Kaupverð liggur ekki fyrir, segir enn fremur í blaðinu.

Uppfært klukkan 12

Samherji hefur sent frá sér tilkynningu um viljayfirlýsinguna. Hana má sjá að neðan.

Viljayfirlýsing undirrituð vegna kaupa á eignum Norðuráls í Helguvík

Norðurál og Samherji fiskeldi, sem er hluti af samstæðu Samherja, hafa skrifað undir viljayfirlýsingu í tengslum við kaup á eignum Norðuráls í Helguvík. Samherji fiskeldi er með möguleika til laxeldis á lóðinni til skoðunar.

Samherji hefur hafið frumathugun á aðstæðum til laxeldis í Helguvík og er niðurstöðu að vænta fyrir áramót.

Á Suðurnesjum er Samherji fiskeldi þegar með sláturhús og vinnslu í Sandgerði, eldisstöð á Stað við Grindavík og eldisstöð á Vatnsleysuströnd. Samherji fiskeldi er svo að auki með landeldi á laxi á Núpsmýri við Kópasker og seiðastöð á Núpum í Ölfusi.

Samherji fiskeldi hefur einkum lagt áherslu á landeldi í sínum rekstri og er stærsti framleiðandi bleikju í heiminum með tæplega 3.800 tonn árlega. Þá framleiðir félagið um 1.500 tonn af laxi. Næstu vikur mun félagið kanna hagkvæmni og möguleika á því að byggja landeldisstöð við eignirnar sem nú standa í Helguvík.

Vegna þessara áforma áttu starfsmenn Samherja fiskeldis fund með bæjarstjórum Reykjanesbæjar og Suðurnesjabæjar. Á þessum fundi voru bæjarstjórarnir upplýstir um stöðuna og voru lagðar fyrir þá spurningar sem skipta miklu máli við mat á möguleikum svæðisins til laxeldis.

„Samherji fiskeldi hefur áhuga á að vaxa í landeldi á laxi og er með mögulega staðsetningu í eignum Norðuráls í Helguvík til skoðunar. Á næstu vikum munum við fara yfir forsendur og möguleika til laxeldis á svæðinu áður en frekari ákvarðanir verða teknar,“ segir Jón Kjartan Jónsson, framkvæmdastjóri Samherja fiskeldis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×