Fótbolti

Svekkjandi jafntefli Færeyinga í Þórshöfn

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Odmar Faro skoraði mark Færeyinga í dag.
Odmar Faro skoraði mark Færeyinga í dag. vísir/Getty

Nokkrum leikjum er nýlokið í D-deild Þjóðadeildarinnar þar sem Færeyingar voru meðal annars í eldlínunni en þeir fengu Letta í heimsókn í Þórshöfn.

Lettar komust yfir á 25.mínútu en Odmar Faro var fljótur jafna metin fyrir Færeyjar. Á 76.mínútu var mark dæmt af Færeyingum vegna rangstæðu. Vægast sagt umdeild ákvörðun.

Fleiri urðu mörkin ekki og lokatölur því 1-1 en Færeyjar eru með sjö stig eftir þrjá leiki.

Lærisveinar Helga Kolviðssonar í Liechtenstein fengu Gíbraltar í heimsókn og töpuðu 0-1. Liechtenstein með þrjú stig eftir tvo leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×