Erlent

Vissu af smitinu en fóru samt að hitta fólk

Kjartan Kjartansson skrifar
Vegafarandi í Mílanó á Ítalíu gengur fram hjá sjónvörpum með myndum af Trump-hjónunum sem nú eru smituð af kórónuveirunni. Fréttin hefur farið sem eldur í sinu um heimsbyggðina í dag.
Vegafarandi í Mílanó á Ítalíu gengur fram hjá sjónvörpum með myndum af Trump-hjónunum sem nú eru smituð af kórónuveirunni. Fréttin hefur farið sem eldur í sinu um heimsbyggðina í dag. AP/Luca Bruno

Hvíta húsið vissi af því að einn nánasti ráðgjafi Donalds Trump Bandaríkjaforseti væri smitaður af kórónuveirunni á miðvikudagskvöld en forsetinn og aðrir sem voru útsettir fyrir smiti héldu samt áfram að vera á meðal fólks. Trump og eiginkona hans greindust bæði smituð í gærkvöldi.

Hope Hicks, einn nánasti ráðgjafi Trump forseta, fann fyrir einkennum þegar hún ferðaðist með honum á kosningafund í Minnesota á miðvikudag. Sýni sem var tekið úr henni að morgni miðvikudags reyndist neikvætt en hún greindist svo jákvæð síðar um daginn. Fréttastofa CBS-sjónvarpsstöðvarinnar segir að Hvíta húsið hafi vitað af því þegar á miðvikudagskvöld.

CNN-fréttastöðin segir að hópur embættismanna í Hvíta húsinu hafi vitað af því að Hicks væri smituð á fimmtudagsmorgun. Þrátt fyrir það ferðaðist Trump forseti, sem hafði þá verið útsettur fyrir smiti, til New Jersey þar sem hann tók þátt í fjáröflunarfundi fyrir framboð sitt. Að sögn Washington Post var Trump í návígi við tugi manns á viðburðinum. Forsetinn var ekki með grímu.

Kayleigh McEnany, blaðafulltrúi Hvíta hússins, hélt einnig blaðamannafund í Hvíta húsinu í gær. Hún var ekki með grímu og minntist ekki á að Hicks hefði greinst smituð.

New York Times segir að Hvíta húsið hafi vonast til þess að fréttir af því að Hicks væri smituð spyrðust ekki út. Þær vonir hafi gufað upp eins og dögg fyrir sólu þegar sýni úr forsetahjónunum greindist jákvætt seint í gærkvöldi.

Mike Pence, varaforseti, greindi frá því í dag að sýni sem var tekið úr honum og eiginkonu hans Karen hefðu reynst neikvæð. Framboð Joe Biden, sem deildi sviði með Trump í kappræðum á þriðjudagskvöld, hefur ekki tjáð sig um hvort frambjóðandi demókrata hafi farið í sýnatöku.

Trump er nú sagður með „mild kvefeinkenni“, að sögn New York Times. Hann er sagður ætla að vinna heima í sóttkví á meðan hann jafnar sig. Fjöldi ættmenna hans og nánustu ráðgjafa sem voru í nánu samneyti við hann í vikunni og var ekki með grímu gæti þó hafa verið útsettur fyrir smiti.


Tengdar fréttir

Hvað gerist ef Trump verður veikur?

Donald Trump Bandaríkjaforseti er smitaður af Covid-19 og verði hann veikur gæti það haft mikil áhrif á bæði baráttu hans til að ná endurkjöri og stjórn Bandaríkjanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×