Innlent

Fjár­­hundinum Tímoni bjargað eftir tíu daga í djúpri gjótu

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Hér má sjá hvar og hvert Tímon féll niður.
Hér má sjá hvar og hvert Tímon féll niður. Mynd/Úlfhildur Ída

Fjárhundurinn Tímon komst sannarlega í hann krappann fyrr í þessum mánuði. Þann 16. september hvarf hann sporlaust við göngur þegar hann ferðaðist ásamt eigendum sínum yfir afar sprungið svæði í Blikalónsdal á Norðausturlandi. Tíu dögum síðar var honum bjargað upp úr um sex metra djúpri gjá. 

Þetta kemur fram í Facebook-færslu Ágústu Ágústsdóttur, eiganda Tímons. Í færslunni segir hún frá hvarfi hundsins og leitinni sem fylgdi.

„Á miðvikudegi 16. september á öðrum degi fyrstu gangna hvarf fjárhundurinn okkar hann Tímon sporlaust þegar verið var að fara yfir mjög sprungið svæði syðst í Blikalónsdalnum. Kiddi leitaði þá að honum í um tvo tíma og aftur morguninn eftir en hvorki tangur né tetur fannst af honum. Við töldum engar líkur á að finna hundinn aftur og vonuðum þá bara að hann hefði fengið skjótan dauða. Okkur fannst ömurlegt til þess að hugsa að hann lægi lifandi ofan í djúpri kaldri gjá og jafnvel særður,“ skrifar Ágústa.

Tíu dögum síðar, í gær, á fyrri degi seinni gangna hafi verið ákveðið að fara úr leið og gera lokatilraun til að finna þann fjórfætta. Riðið hafi verið um svæðið, flautað og kallað öðru hverju, en sökum mikils vindgnauðs hafi verið erfitt að heyra nokkuð.

„En viti menn, rottur og mýs! Greindi ég þá eitthvað smá hljóð í vindbelgingnum sem ég var þó ekki viss um, kallaði á Kidda [innsk. blm: vinur Ágústu] og bað hann að stoppa og koma. Færðum við okkur nær stóru sprungusvæði og hlustuðum og kölluðum aftur. Dásamlegt hundsgelt barst okkur til eyrna djúpt undir fótum okkar. Hundsgelt frá dýri sem sjálfsagt aldrei hefur verið eins fegið að heyra raddir eigenda sinna.“

Björgun fjárhundsins Tímons. Á miðvikudegi 16. september á öðrum degi fyrstu gangna hvarf fjárhundurinn okkar hann...

Posted by Ágústa Ágústsdóttir on Sunday, 27 September 2020

Sums staðar svo djúpt að ekki sást til botns

Ágústa segir að töluverðan tíma hafi tekið að finna út nákvæmlega hvar Tímon, sem er af tegundinni border collie, var staðsettur þar sem sumar sprungur hafi verið svo djúpar að ekki sást til botns. Hún hafi hins vegar komið auga á lítið op, hálfgróið lyngi og gróðri. Þegar gróðrinum var ýtt frá kom í ljós op ofan í fimm til sex metra djúpa gjá.

Fyrst um sinn sá Ágústa lítið sem ekkert ofan í gjána. Þegar hún hafi kallað vinalega ofan í hafi hins vegar vinalegur og kunnuglegur kollur Tímons birst undan stórri steinhellu sem hann hafi legið undir.

Mikið lifandis ósköp hlýnaði okkur um hjartað að sjá hann heilan á húfi

Í kapphlaupi við sólsetrið

Þegar þarna var komið við sögu voru góð ráð dýr og erfitt að sjá hvernig komast ætti að hvutta.

„Niðurstaðan var sú að við urðum að skilja við hann þarna og koma aftur síðar með tól, tæki og plön. Við hentum öllu gangnanestinu okkar niður til hans ásamt vatnsflösku og safafernu, reyndum að merkja staðinn og leggja landslagið á minnið og héldum síðan áfram. Ömurlegt að þurfa skilja greyið eftir en þó glöð í hjarta með mikinn feginleik í farteskinu yfir því að hafa fundið hann.“

Eftir að komið var til byggða til að undirbúa björgunaraðgerðir var brunað aftur af stað, því ná þurfti til Tímons fyrir myrkur. Við tók kapphlaup við sólsetrið.

„Hálftíma gangur var frá bílnum að gjánni. Hreinsað var frá holunni og löngum stiga rennt niður á botninn. Raggi fór niður og voru miklir gleði- endurfundir. Ótrúlegt en satt þá var hann óslasaður en svangur var hann og horaður eftir harða dvöl. Hann tók glaður við slátrinu sem Kiddi tók með sér,“ skrifar Ágústa og bætir við að héðan í frá verði Tímon aldrei kallaður annað en Tímon Dal.

Tímon frelsinu feginn eftir björgunaraðgerðir gærdagsins.Mynd/Úlfhildur Ída

Tímon hvergi banginn

Í samtali við Vísi segir Ágústa að Tímon hafi verið þreyttur og svangur þegar björgunaraðgerðum lauk. Hann hafi tekið vel til matar síns og gætt sér á slátri sem beið hans við komuna upp úr gjánni. Tímon er þó í bílveikari kantinum, og ekki fór betur en svo að hann ældi upp slátrinu á heimleiðinni. Ágústa segir það þó ekki hafa komið að sök.

„Hann er bara brattur og glaður,“ segir Ágústa. Raunar hafi Tímon verið svo brattur í morgun að hann sótti í morgun hrossin og hugðist fara með í göngur. Ágústa segir þó að hann hafi fengið frí í dag og orðið eftir heima.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×