Skoðun

Samvinna í stað átaka

Ingibjörg Isaksen skrifar

Í gær kynnti bæjarstjórn Akureyrarbæjar á blaðamannafundi nýja tilhögun samstarfs framboðanna sem eiga fulltrúa í bæjarstjórn Akureyrarbæjar. Er þetta viðleitni framboðanna til að takast á við krefjandi tíma sem framundan eru með breiðri samvinnu. Alla jafna er hægt að tala um stjórnmál á Íslandi sem átakastjórnmál, þar sem minni og meirihluti hvort sem er á þingi eða í sveitarstjórnum takast á um menn og málefni.

Yfirleitt á málefnalegum grunni þar sem minnihluti er að veita meirihluta aðhald en einnig þekkjum við öll dæmi þess að pólitíkin sé farin að snúast um að slá ódýrar pólitískar keilur. Fyrir því er engin þolinmæði við erfiðar aðstæður. Sú leið sem við höfum ákveðið að láta reyna á kemur til vegna ríks samvinnuvilja þeirra flokka sem sitja í bæjarstjórn á Akureyri. Þessi samvinnuleið er einnig krefjandi og stendur og fellur með því að unnið sé af fullkomnum heilindum að flóknum úrlausnarefnum.

Samvinna með hagsmuni Akureyrar að leiðarljósi

Sú tilraun bæjarstjórnar Akureyrar til þess að stunda samvinnustjórnmál frekar en átakastjórnmál er spennandi. En á sama tíma byggir hún á gagnkvæmu trausti milli aðila sem sitja í bæjarstjórn ásamt góðri samvinnu fólks sem er lausnamiðað út frá hagsmunum Akureyrarbæjar. Lagður hefur verið fram samstarfssáttmáli sem er um leið aðgerðaráætlun okkar út kjörtímabilið. Tíminn mun leiða í ljós hvernig þessi tilraun mun ganga en bjartsýn geng ég inn í þetta samstarf, full eftirvæntingar að fá að vinna með öllu þessu góða fólki að lausnum til handa Akureyringum.

Breyttir tímar

Stjórnmálin á Íslandi hafa eins og áður segir oft verið skilgreind sem átaka stjórnmál. Straumar og stefnur hafa stýrst frá hægri og vinstri sem hafa verið andstæðir pólar. Stjórnmálin eru hreyfiafl íbúa viðkomandi eininga til þess að snúa samfélaginu. Það er kannski ekki endilega víst að slíkt hreyfiafl eigi eingöngu að snúast um pólariseringu frá vinstri til hægri. Samvinna stjórnmálaafla, sama hvar þeir eru á hinu pólitíska sviði, allt frá hægri til miðju og þaðan til vinstri ætti að vera best til þess fallin að ná skynsamlegri niðurstöðu fyrir íbúana.

Við sem störfum í stjórnmálum höfum misjafnar skoðanir og stefnur en með auknu samstarfi og samræðu stjórnmálum er líklegt að við finnum betri niðurstöðu fyrir íbúana. Þetta sést kannski einna best á núverandi ríkisstjórnarsamstarfi þar sem flokkarnir sem starfa saman eru vinstriflokkur, hægriflokkur og miðjuflokkur. Þeir vinna saman að lausnum sem gengið hefur frekar vel. Ánægja með störf ríkisstjórnarinnar er í sögulegum hæðum sér í lagi þegar litið er til núverandi aðstæðna í samfélaginu. Samstarf ríkisstjórnarinnar er samvinnustefnan í verki. Stefna sem Framsókn hefur ástundað og það er það sem við viljum ástunda. Þess vegna styð ég breitt samstarf stjórnmálaaflanna á Akureyri og tel þetta tilraunarinnar virði. Ég vona að samstarfið muni ganga vel og mun leggja mitt af mörkum til að ná árangri með með hugmyndafræði samvinnunnar og hagsmuni bæjarbúa að leiðarljósi.

Ingibjörg Isaksen

Bæjarfulltrúi á Akureyri




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×