Gylfi Þór allt í öllu er Everton flaug áfram 16. september 2020 21:10 Gylfi Þór átti frábæran leik í kvöld er Everton flaug inn í 32-liða úrslit enska deildarbikarsins. Jon Super/Getty Images
Gylfi Þór Sigurðsson var í byrjunarliði Everton ásamt því að bera fyrirliðabandið er liðið lagði Salford City 3-0 í enska deildarbikarnum í kvöld. Gylfi Þór Sigurðsson hóf deildarleikinn gegn Tottenham Hotspur um síðustu helgi á bekknum. Carlo Ancelotti – þjálfari liðsins – gerði tíu breytingar og meðal þeirra sem komu inn var Gylfi Þór. Var hann fyrirliði liðsins í kvöld er Salford City mætti á Goodison Park í 64-liða úrslitum enska deildarbikarsins. Strax á 8. mínútu fengu heimamenn hornspyrnu sem Gylfi tók. Spyrnan var góð og flaug beint á kollinn á Michael Keane sem fann sér svæði milli varnarmanna Salford sem ákváðu að dekka svæði frekar en menn í föstum leikatriðum í kvöld. Skallinn frá Keane var góður og staðan orðin 1-0 heimamönnum í vil. Fleiri urðu mörkin ekki í fyrri hálfleik en í síðari hálfleik máttu bersýnilega sjá muninn á liðunum. Gylfi átti frábæra sendingu sem Moise Kean skallaði í slá strax í upphafi síðari hálfleiks. Það var svo á 73. mínútu sem Gylfi sjálfur gerði svo gott sem út um leikinn þegar hann renndi fyrirgjöf Anthony Gordon í netið. Var þetta 100. mark Gylfa á Englandi. Hann var svo næstum búinn að bæta því 101. í safnið er hann átti gott skot í stöngina rúmum tíu mínútum síðar. Þriðja mark Everton kom á endanum en það gerði Kean af vítapunktinum þegar þrjár mínútur voru til leiksloka. Everton skaut svo tvívegis í stöng til viðbótar áður en dómari leiksins flautaði til leiksloka. Sanngjarn 3-0 sigur Everton staðreynd og vonandi að frammistaða Gylfa Þórs gefi Ancelotti eitthvað til að hugsa um fyrir næsta deildarleik liðsins. Everton mætir Fleetwood Town í 32-liða úrslitum enska deildarbikarsins þann 22. september. 32-liða úrslit Bristol City/Northampton Town - Aston VillaChelsea - BarnsleyFleetwood Town - EvertonFulham - Sheffield WednesdayLeicester City - ArsenalLeyton Orient - Tottenham HotspurLuton Town - Manchester UnitedManchester City - AFC BournemouthMillwall - Burnley/Sheffield UnitedMorecambe - Newcastle UnitedNewport County - WatfordPreston North End - Brighton/PortsmouthWest Brom - BrentfordWest Ham United - Leeds UnitedWolves/Stoke City - Gillingham Allir leikirnir fara fram þann 22. september.
Enski boltinn Fótbolti Tengdar fréttir Leeds úr leik eftir vítaspyrnukeppni | Búið að draga í næstu umferð Leeds United er úr leik í enska deildarbikarnum eftir tap í vítaspyrnukeppni gegn Hull City á heimavelli í kvöld. Southampton tapaði einnig á heimavelli á meðan önnur úrvalsdeildarlið komust áfram. 16. september 2020 21:05
Leeds úr leik eftir vítaspyrnukeppni | Búið að draga í næstu umferð Leeds United er úr leik í enska deildarbikarnum eftir tap í vítaspyrnukeppni gegn Hull City á heimavelli í kvöld. Southampton tapaði einnig á heimavelli á meðan önnur úrvalsdeildarlið komust áfram. 16. september 2020 21:05