Skoðun

Orku­jurtir - um­hverfis­vænir orku­gjafar

Silja Dögg Gunnarsdóttir skrifar

Innlend olíuframleiðsla eflir orkuöryggi Íslands, sparar gjaldeyri og minnkar verðsveiflur. Hún er einnig mun umhverfisvænni en notkun jarðefnaeldsneyta. Ræktun á repju og nepju bindur koldíoxíð og dregur úr losun gróðurhúsaloftegunda. Vinnsla á olíu úr fræjum þessara orkujurta bindur meira koldíoxíð en losnar við bruna á olíunni, öfugt við það sem gerist þegar jarðolía er brennd.

Nýsköpun í landbúnaði

Orkujurtirnar repja og nepja má rækta með góðum árangri víða um land og getur orðið góð viðbót sem nýsköpun í íslenskum landbúnaði og iðnaði. Ræktun orkujurta styður við landgræðslu og jarðvegsundirbúning fyrir aðra ræktun. Við ræktun og vinnslu þessara tegunda verða til þrjár afurðir; olía, fóðurmjöl og stönglar. Stönglarnir eru notaðir sem áburður og undir húsdýr, fóðurmjölið er próteinríkt og hentar vel fyrir nautgripi, svín og eldisfiska. Þá má nota olíuna sem vistvænan orkugjafa á vélar sem brenna dísilolíu.

Þörf á efnahagslegum hvötum

Síðastliðið haust flutti undirrituð ásamt öðrum þingmönnum Framsóknarflokksins þingsályktunartillögu um mótun efnahagslegra hvata til að efla ræktun orkujurta á Íslandi. Með henni er Sigurði Inga Jóhannssyni samgöngu og sveitastjórnarráðherra falið að skipa starfshóp til að móta og hrinda í framkvæmd aðgerðaráætlun um efnahagslegan hvata sem styrkja forsendur fyrir ræktun orkujurta. Þessi þingsályktunartillaga verður endurflutt á haustþingi.

Betra fyrir efnahaginn og umhverfið

Íslensk stjórnvöld hafa sett sér markmið um að minnka notkun á jarðefnaeldsneyti og nýta frekar orku sem framleidd er með endurnýjanlegum orkugjöfum. Ísland er aðili að Parísar sáttmálanum, samkvæmt sáttmálanum skulu aðildarríkin setja sér markmið um að draga úr losun gróðurhúsaloftegunda og unnið er að því statt og stöðugt. Það mikið gleðiefni þegar ritað var undir viljayfirlýsingu í síðustu viku milli Samgöngustofu og ISAVIA um samstarf vegna tilraunaverkefnis um íblöndun repjuolíu á stórvirk tæki á Keflavíkurflugvelli. Með samstarfi Samgöngustofu og ISAVIA er stigið mikilvægt skref í orkuskiptum með því að auka hlutdeild innlendra orkugjafa. Með sívaxandi umhverfisvitund og aukinni þekkingu á áhrifum brennslu jarðefnaeldsneytis á hlýnun jarðar hljótum við öll að vera sammála um að nýta umhverfisvæna og sjálfbæra orkugjafa, það er gott fyrir jörðina, landbúnaðinn og efnahaginn. Repjuræktun eflir sjálfbærni íslensk samfélags og styrkir íslenska atvinnuvegi. Áfram veginn!

Höfundur er þingmaður Framsóknarflokksins.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×