Innlent

Tveir greindust innan­lands

Atli Ísleifsson skrifar
098CF5BCC71DFF4CD1A934E9A74826E87EB18EBD80F5EB85DF36A2AEEEE32CBE_713x0
Vísir/Vilhelm

Tveir einstaklingar greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og var hvorugur þeirra í sóttkví. Þá greindust þrír á landamærunum - einn með virkt smit en beðið er niðurstöðum mótefnamælingar í tilvikum tveggja.

Þetta kemur fram í nýjustu tölum á covid.is. Enginn er nú á sjúkrahúsi með Covid-19.

Alls eru staðfest smit frá upphafi faraldursins 2.168 og af þeim sem hafa greinst með Covid-19 á Íslandi eru tíu látin.

Í einangrun eru 63 manns og er fjöldinn sá sama og í gær. 373 eru í sóttkví, en í gær voru þeir 362.

Alls voru tekin 143 sýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans innanlands í gær og 880 á landamærunum eða í seinni landamæraskimun. 

Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur er 11,2, en var 10,6 í gær. Þá er nýgengi landamærasmita 5,5 líkt og í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×