Skoðun

Flugdrekaheilkennið

Skúli Sigurður Ólafsson skrifar

Nokkur orð um trans-Jesú

Ég skil ekki enn af hverju þau birtu þessa mynd af Jesú með varalit og brjóst á auglýsingum fyrir barnastarf kirkjunnar. Markhópur barnastarfsins kallaði vart eftir slíku og ég sé ekki að hinsegin fólki sé hér einhver greiði gerður. Teikningin sýnir stereótýpu sem ég held að fáir tengi við auk þess sem hugmyndin virkar yfirborðsleg. Hvað ætlum við að gera með þessa mynd annars? Í sumar baðst biskup afsökunar á framgöngu kirkjunnar í garð samkynhneigðra. Full ástæða var til þess enda var einkar illa staðið að þeim málum á sínum tíma. Áfram hefði mátt vinna að samtali þjóðkirkju og hinsegin fólks án þess að færa viðkvæm málefni í þennan búning.

Vissulega má tengja guðfræðina að baki þessari myndbirtingu við ákveðna hefð innan kristindómsins, þar sem Jesús er birtur sem fulltrúi úr minnihlutahópi. Sú túlkun hefur þó oftar en ekki komið frá einstaklingum sem tilheyra slíkum hópum. Hér kemur hún ofan frá sem kann að orka tvímælis. Kristin trú byggir vissulega á frelsi en því fylgir ábyrgð. Gæta þarf alúðar og hófs og sýna nærgætni í hvívetna.

Margt bendir til þess að sá hópur sem undirbjó auglýsinguna hafi verið bæði þröngur og einsleitur. Reynslan sýnir að þegar svo er háttað er hætt við því að fólk geri mistök, alls óháð mannkostum þess og elju. Það telur sig hafa fundið snjallar lausnir án þess að kanna hvaða spurningar brenna á samfélaginu.

Hér erum við því komin inn á ákveðið einkenni á mannlegum samfélögum sem nefna má „flugdrekaheilkennið“. Það lýsir sér í því að líkur sækir líkan heim og þess er ekki gætt að hlusta á og taka tillit til andstæðra sjónarmiða. Í þessu tilviki hefði verið betra að hafa jarðbundna og varkára hugsuði með í liði. Allir geta ekki svifið uppi í háloftum, einhver verður að standa á jörðinni og halda í spottann, annars ofrís drekinn og brotlendir! Til þess að fyrirbyggja það verður fólk að geta sýnt hluttekningu (empathy). Það þarf að geta sett sig í spor annarra.

Hvaða þörf var annars fyrir hendi að birta þessa auglýsingu í barnastarfi? Ég kem ekki auga á hana. Þarna hefði mátt fara aðrar leiðir – t.d. sýna fjölbreytni mannlífsins í kringum Jesú eða kirkju. Kirkjan er jú sannarlega opin öllum. Markmiðinu hefði verið náð án þess að valda þeim úlfaþyt sem orðið hefur. Ég kalla eftir breyttu verklagi í kynningarmálum þjóðkirkjunnar. Höfum hugfast að þjóðkirkja er ekki smáhópur heldur breiðfylking fólks og taka þarf tillit til margs konar sjónarmiða.

Höfundur er prestur í Neskirkju.




Skoðun

Skoðun

Þorpið

Alina Vilhjálmsdóttir skrifar

Sjá meira


×