Innlent

Starfsfólk og bekkjarfélagar í sóttkví eftir að nemandi í 7. bekk smitaðist

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Smitið kom upp í Vallaskóla á Selfossi.
Smitið kom upp í Vallaskóla á Selfossi. Vísir/vilhelm

Nemandi í 7. bekk í Vallaskóla á Selfossi greindist í gær með Covid-19, sjúkdóminn sem kórónuveiran veldur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vallaskóla en Sunnlenska.is greindi einnig frá málinu í dag. Samnemendur barnsins, umsjónarkennari og stuðningsfulltrúi fara í sóttkví vegna smitsins.

Í tilkynningu skólans segir að nemandinn hafi ekki mætt í skólann á mánudag og þriðjudag í þessari viku en svo mætt í fyrsta tíma á miðvikudaginn. Hann hafi fljótlega verið sendur heim vegna flensueinkenna. Þar áður hafði nemandinn síðast verið í skólanum föstudaginn 28. ágúst en ekki fengið einkenni fyrr en um helgina.

Nemandinn var einungis í samneyti við nokkra bekkjarfélaga í bekkjarstofu umræddan miðvikudagsmorgun, ásamt umsjónarkennara og stuðningsfulltrúa. Nemendur í viðkomandi bekk, umsjónarkennari og stuðningsfulltrúi fara því í sóttkví frá og með deginum í gær, 3. september. Aðrir þurfa ekki að sæta sóttkví sem stendur. Haft var samband við alla hlutaðeigandi í morgun, að því er segir í tilkynningu skólans.

„Málið er erfitt fyrir alla þá sem því tengjast og biðjum við alla í samfélagi skólans að halda ró sinni, sýna samstöðu og hluttekningu. Við erum öll í þessu saman,“ segir jafnframt í tilkynningu.

Kórónuveirusmit hafa víða komið upp í skólum á landinu í þessari seinni bylgju faraldursins sem nú gengur yfir. Nú síðast var greint frá því að þrír starfsmenn Fossvogsskóla hafi verið settir í úrvinnslusóttkví og skimun eftir að starfsmaður í eldhúsi greindist með kórónuveirusmit.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×