Lífið

„Barnið mitt þekkir ekki annað“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Sara Snorradóttir hefur barist við krabbamein síðustu þrjú ár og átti nýfætt barn þegar hún greindist.
Sara Snorradóttir hefur barist við krabbamein síðustu þrjú ár og átti nýfætt barn þegar hún greindist. Vísir/Vilhelm

„Þá átti ég þriggja mánaða stelpu,“ segir Sara Snorradóttir um það þegar hún greindist með Hodgkins eitlafrumukrabbamein í ágúst árið 2017. Hún viðurkennir að það hafi verið erfitt að fá þessar fréttir svo skömmu eftir að barnið fæddist.

„Ég fór í meðferð við því, þessa fyrstu almennu meðferð sem allir fara í við Hodgkins og klára hana í febrúar 2018. Þá er allt farið og ég á bara að vera laus. En ég næ svo 11 mánuðum á milli en í janúar 2019 þá greinist ég aftur.“

Hreyfingin í fyrsta sæti

Sara ræddi þetta erfiða ferli við Sigríði Þóru Ásgeirsdóttur í Krafts hlaðvarpinu Fokk ég er með krabbamein. Það var í júlí á þessu ári sem Sara fékk þær fréttir í júlí á þessu ári að hún væri aftur laus við meinið.

„Þetta tók aðeins lengri tíma í þetta skiptið, enda var þetta svolítið seigt, vildi ekki fara, vildi ekki yfirgefa mig.“

Þessi seinni meðferð var erfiðari og tók meira á líkamann.

„Ég er búin að vera að þessu í þrjú ár, barnið mitt þekkir ekki annað.“

Í viðtalinu ræðir Sara um mikilvægi hreyfingar og endurhæfingar þegar kemur að þessum sjúkdómi.

„Mér finnst að hún eigi að vera algjörlega í fyrsta sæti og að gera þetta allan tímann. Það er náttúrulega mismunandi dagsform og allt svoleiðis, en reyna.“

Sjálf stundaði hún mikla hreyfingu og mætti jafnvel í ræktina degi eftir lyfjameðferð. Viðtalið við Söru hefst á mínútu 41:25 í þættinum, sem kallast Af hverju skiptir endurhæfing máli? Þátturinn er á Spotify og helstu efnisveitum og má einnig hlusta á hann í spilaranum hér fyrir neðan. Í fyrri hluta þáttar ræðir Sigríður Þóra við þá Atla Má Sigurðsson og Hauk Guðmundsson.

Nýr þáttur af hlaðvarpinu Fokk ég er með krabbamein er væntanlegur hingað á Vísi á morgun.


Tengdar fréttir

Hreyfing vanmetinn hluti af krabbameinsmeðferð

Líkamleg endurhæfing er mikilvægur þáttur í bataferli þeirra sem greinast með krabbamein. Hér á landi er til dæmis bæði hægt að sækja þjálfun og æfingar í gegnum félögin Kraft og Ljósið. Þjálfarar segja að það geti verið mjög hvetjandi að æfa með fólki sem hefur einnig greinst með krabbamein.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.