Innlent

Ná­grannar krefjast skaða­bóta vegna fram­kvæmda við glæsi­hús í Garða­bæ

Atli Ísleifsson skrifar
Frá Garðabæ.
Frá Garðabæ. Vísir/Vilhelm

Íbúar húss í Garðabæ sem liggur að Frjóakri 9 hafa krafist þess að sveitarfélagið viðurkenni skaðabótaskyldu vegna þess sem þeir vilja meina að hafi verið ólögmætt byggingarleyfi fyrir einbýlishús við Frjóakur 9. Skuli bærinn ganga til samninga um skaðabætur.

Fréttablaðið greinir frá þessu og vísar í fundargerð sveitarstjórnar og bréfs lögmanna íbúa nágrannanna. Í bréfinu segir að farið hafi verið á svig við lög um mannvirki, skipulagslög og skipulagsskilmála Akrahverfi með ýmsum hætti við byggingu hússins.

Hjónin Margrét Íris Baldursdóttir og Magnús Ármann fjárfestir keyptu Frjóakur 9 fyrr á árinu af athafnamanninum Antoni Kristni Þórarinssyni og vöktu kaupin athygli fjölmiðla enda kaupverðið 360 milljónir króna.

Í frétt Fréttablaðsins segir að Margrét og Magnús hafi eftir kaupin ráðist í miklar framkvæmdir og séu langt komin með að útbúa umfangsmikla aðstöðu til líkamsræktar í kjallara hússins – nokkuð sem nágrannar eru ósáttir með og telja brot á deiliskipulagi. 

Benda þeir á að undanþága hafi fengist til að stækka kjallara hússins á sínum tíma gegn því að um gluggalaust rými væri að ræða sem hefði lítil áhrif á nágranna. Raunin hafi hins vegar verið önnur. Sömuleiðis sé sett út á framkvæmdir við steinsteypta saunu á lóðinni.

Bæjarstjóra gert að svara bréfinu

Á fundi sveitarstjórnar síðastliðinn þriðjudag var bréfið var tekið fyrir og greindi Gunnar Einarsson bæjarstjóri frá því að framkvæmdir við húsið hafi verið stöðvaðar og að honum hafi verið falið að svara bréfi nágrannanna. 

Umsókn um byggingarleyfi vegna breytinga á kjallararýminu hafi svo verið vísað til umfjöllunar skipulagsnefndar Garðabæjar.

Að neðan má sjá stutt innslag úr Heimsókn á Stöð 2, þætti Sindra Sindrasonar, á Stöð 2 frá í febrúar þar sem hann leit í heimsókn í húsið sem um ræðir. Ræddi hann við innanhúsarkitektinn Berglind Berndsen hafði þá innréttað húsið að innan.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×