Látinn fara án þess að spila sekúndu en fær samt tvo milljarða frá félaginu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. febrúar 2020 16:45 Dion Waiters fær tvo milljarða fyrir næstu sextán mánuði en þarf samt ekki að gera neitt. Hann naut ekki lengur góðs af því á þessu tímabili að vera liðsfélagi Dwyane Wade. Getty/Michael Reaves
Dion Waiters fær borgaðan út samning sinn hjá Memphis Grizzlies þrátt fyrir að spila aldrei fyrir liðið. Memphis Grizzlies vildu svo mikið losna við Dion Waiters að þeir eru tilbúnir að borga honum meira en tvo milljarða fyrir restina af þessu tímabil og allt næsta tímabil. Dion Waiters kom til Memphis í leikmannaskiptum við Miami Heat og Minnesota Timberwolves en hann hefur leikið með Miami Heat undanfarin fjögur tímabil. Waiters hluti af skiptunum sem færði Miami liðinu Andre Iguodala frá Grizzlies. The Grizzlies have waived guard Dion Waiters, league sources tell @TheAthleticNBA@Stadium. Waiters will receive his pay for the remainder of this season and $12.6M in 2020-21.— Shams Charania (@ShamsCharania) February 9, 2020 Dion Waiters hefur reyndar verið í tómu tjóni á þessu tímabili vegna meiðsla og leikbanna og kom ekki við sögu í 45 fyrstu leikjum Miami Heat á tímabilinu. Það komst meðal annars upp um það þegar hann þóttist vera veikur en hélt síðan upp á 28 ára afmælið sitt með veglegri veislu. Það var líklega kornið sem fyllti mælinn. Hann fékk sex leikja bann hjá félaginu og Miami Heat losaði sig síðan við hann. Waiters náði því aðeins að spila þrjá leiki fyrir Miami áður en félagið losaði sig við samninginn hans en var þá með 9,3 stig og 3,7 fráköst að meðaltali á 14 mínútum í leik. Dion Waiters getur samið við annað lið í NBA-deildinni og einhverjar sögusagnir voru um að Los Angeles Lakers hafi áhuga á honum. Hann er enn bara 28 ára gamall og er hæfileikaríkur leikmaður.
NBA Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Körfubolti Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Unga hjólreiðakonan látin Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Efast um dugnað og hugarfar Rashford Enski boltinn Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Fleiri fréttir Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sjá meira