Innlent

Blá­fjalla­vegi lokað varan­lega vegna vatns­verndar­sjónar­miða

Atli Ísleifsson skrifar
Kaflanum sem verður lokað á morgun er rauðmerktur á kortinu.
Kaflanum sem verður lokað á morgun er rauðmerktur á kortinu. Vegagerðin

Bláfjallavegi (nr. 417) frá Bláfjallaleið og að hellinum Leiðarenda verður lokað varanlega á morgun klukkan 15.

Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar. Þar segir að lítil umferð sé um þennan veghluta og vegurinn ekki þjónustaður yfir vetrarmánuðina.

„Víða eru brattir vegfláar og því hætta á að bílar velti með tilheyrandi hættu á olíumengun. Talið er mikilvægt að huga að vatnsvernd og grípa inn í áður en hugsanlegt óhapp verður en Bláfjallavegur liggur að stórum hluta innan vatnsverndarsvæðis.

Aðal leiðin í Bláfjöll liggur frá Suðurlandsvegi. Vegagerðin mun lagfæra vegsvæðið á þeim kafla til að minnka hættu á slysum til muna,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×