Gular viðvaranir vegna sunnanstorms og leysinga Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 4. febrúar 2020 18:24 Kort Veðurstofunnar vegna gulra viðvarana um landið. veðurstofa íslands
Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular viðvaranir um land allt vegna sunnanstorms og leysinga. Varað er við leysingum á öllu landinu og má reikna með vatnavöxtum og auknum líkum á krapaflóðum. Eru íbúar hvattir til að hreinsa frá niðurföllum og fráveituskurðum. Viðvaranir vegna leysinga tóku gildi klukkan 16 í dag og standa til klukkan 12 á fimmtudag. Á Breiðafirði, Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi Vestra og Norðurlandi eystra er síðan varað við sunnanstormi en þó ekki fyrr en á fimmtudag. Er veðrið sem spáð er varasamt ökutækjum sem taka á sig mikinn vind. Viðvaranirnar taka gildi á fimmtudagsmorgun og standa mislengi fram eftir degi eftir landshluta. Á Breiðafirði er gul viðvörun í gildi frá klukkan fimm á fimmtudagsmorgun og til klukkan 11. Er spáð sunnan 15 til 23 metrum á sekúndu með staðbundnum vindstrengjum að 35 metrum á sekúndu. Á Vestfjörðum tekur gul viðvörun gildi klukkan sjö á fimmtudagsmorgun og stendur til klukkan 13. Sunnan 15 til 23 metrar á sekúndu með staðbundnum vindstrengjum allt að 40 metrum á sekúndu. Sama er uppi á teningnum á Ströndum, Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra þar sem viðvörunin gildir reyndar aðeins lengur, eða frá klukkan sex á fimmtudagsmorgni til klukkan 15. Má búast við staðbundnum vindstrengjum að 40 metrum á sekúndu á Ströndum og Norðurlandi vestra sem og á Tröllaskaga og í Eyjafirði.
Veður Mest lesið Frans páfi er látinn Erlent Vildu ekki til Íslands þegar loks bauðst að snúa heim Innlent Vanþekking ráðherra sé áhyggjuefni Innlent Lögmaður þurfi ekki að hafa áhyggjur af þekkingu ráðherra Innlent Dæmi um að fyrirtæki tapi tugum milljóna í „forstjórasvindli“ Innlent Ásthildur Lóa setur húsið umdeilda á sölu Innlent Gripu innbrotsþjófa glóðvolga Innlent „Stjórnvöldum er að takast að loka Kvikmyndaskóla Íslands“ Innlent Hvernig er nýr páfi valinn? Erlent Deildi hernaðarupplýsingum í öðru spjalli með konu sinni og bróður Erlent Fleiri fréttir Dæmi um að fyrirtæki tapi tugum milljóna í „forstjórasvindli“ Halla Tómasdóttir minnist „Pope Francis“ Lögmaður þurfi ekki að hafa áhyggjur af þekkingu ráðherra Andlát páfa og svikahrappar sem herja á fólk og fyrirtæki „Stjórnvöldum er að takast að loka Kvikmyndaskóla Íslands“ Vildu ekki til Íslands þegar loks bauðst að snúa heim Hátt í þrettán stiga hiti á sumardaginn fyrsta Gripu innbrotsþjófa glóðvolga Vanþekking ráðherra sé áhyggjuefni Margar fjölskyldur fastar í fátækt svo árum skiptir Ásthildur Lóa setur húsið umdeilda á sölu Gagnrýnir dómsmálaráðherra fyrir að fara með rangt mál um dvalarleyfi Trump-stjórnin virðist ekki hafa neitt plan Skrítið ef ríkið hefur ekki áhuga á Háholti Maðurinn er laus úr haldi „Við megum mótmæla því að verið sé að drepa saklaust fólk“ Ræddi við foreldra og hætta við miklar hækkanir Einn í haldi lögreglu vegna konu með skerta meðvitund Falla frá gjaldskrárhækkunum og árásir á tímum vopnahlés Bjóst ekki við að ríkisstjórnin héldi meirihluta Viðbragð lögreglu og sjúkraflutningamanna í nágrenni Selfoss Vestfjarðaleiðin verði Hringvegur númer tvö Ferill fyrrum forsætisráðherra og verðlaunaður sagnfræðingur í Sprengisandi Rólegheitaveður á páskadag Ökumaður undir aldri í bílaeltingarleik við lögreglu Mótmæla brottvísun Oscars Gagnrýnir brattar hækkanir: „Þetta er bara dapurlegt“ Eitthvað búi að baki „meira en þrá hans eftir friði“ Engin tengsl milli þolenda og gerenda Tortryggni í garð Rússa og ungmennaráð sem fékk ekkert að segja Sjá meira