Skoðun

Árangurs­rík hags­muna­bar­átta stúdenta í hús­næðis­málum

Eyrún Baldursdóttir skrifar

Húsnæðismál hafa lengi verið eitt stærsta baráttumál stúdenta. Möguleiki á búsetu á stúdentagörðum, þar sem leiguverð er lægra en á almennum markaði, er mikilvægur hluti þess að auka möguleika ungs fólks til þess að sækja sér aukna menntun og því er um gífurlega stórt jafnréttismál að ræða.

Rauði þráðurinn í stefnu Röskvu er jafnrétti til náms. Með Röskvu í fararbroddi Stúdentaráðs (SHÍ) síðastliðin þrjú ár hafa húsnæðismál verið í forgrunni hagsmunabaráttu stúdenta og er árangur mikillar vinnu margra aðila og þrýstings frá stúdentum bersýnilegur í þeirri uppbyggingu sem nú á sér stað á háskólasvæðinu.

Framkvæmdir eru loksins hafnar við Gamla Garð eftir margra ára baráttu stúdenta fyrir uppbyggingu á reitnum. Árið 2017 stóð Röskva fyrir tjaldmótmælum við Gamla Garð til þess að vekja athygli á húsnæðisvanda stúdenta. Tvísýnt var um tíma hvort yrði af uppbyggingu á reitnum og barðist SHÍ ötullega fyrir því. 2018 efldi SHÍ svo til setumótmæla á rektorsgangi til þess að mótmæla töfum á málinu og krafðist skýrrar tímalínu um málið. Öflug hagsmunabarátta SHÍ með Röskvu í fararbroddi skilaði árangri og þann 26. nóvember 2019 hófust framkvæmdir við Gamla Garð.

Fyrir tilstilli vinnu Röskvuliða í SHÍ geta háskólanemar nú framleigt stúdentaíbúðir sínar til annarra nemenda HÍ yfir sumartímann, sem er gífurlega mikil bót fyrir stúdenta utan af landi eða þau sem eyða sumrinu erlendis. Einnig hefur hámarksdvöl foreldra verið lengd og sömuleiðis hámarksdvöl doktorsnema, svo nemendur í hvaða aðstæðum og hvaða námsstigi sem er njóta nú jafnra réttinda.

Fjölgun íbúða, bætt þjónusta og gott samtal milli Félagsstofnunar Stúdenta (FS) og SHÍ síðustu ár hefur skilað miklu, en áframhaldandi uppbyggingar er þörf. Nú búa um 11% stúdenta við Háskóla Íslands á stúdentagörðum FS og er markmið þeirra að geta boðið 15% stúdenta húsnæði. Opnun Mýrargarða hefur stytt biðlista FS mjög og hann nú styttri en nokkru sinni fyrr. Því er lag fyrir stúdenta að sækja á görðunum þessa dagana!

Nemendur við HÍ vilja búa í nágrenni við skólann. Við viljum geta sótt grunnþjónustu í okkar nærumhverfi, farið í matvöruverslun á háskólasvæðinu, stundað líkamsrækt, sótt heilsugæslu og haft börnin okkar í leikskóla í næsta nágrenni. Við viljum einnig hafa aðgang að grænum svæðum og almenningssamgöngum sem tengja háskólasvæðið við aðra hluta borgarinnar. Þessu hefur Röskva barist fyrir og mun halda áfram að gera, en umhverfis- og skipulagsmál einn af grunnþáttum stefnu fylkingarinnar.

Við í Röskvu erum stolt af þeim framförum sem hafa átt sér stað og munum halda áfram baráttunni og þrýsta á uppbyggingu sjálfbærs háskólasvæðis.

Höfundur er oddviti Röskvu í Stúdentaráði.




Skoðun

Sjá meira


×