HK í úrslitakeppnissæti eftir sigur á Stjörnunni Anton Ingi Leifsson skrifar 31. janúar 2020 20:55 Díana Kristín og stöllur unnu góðan sigur í kvöld. vísir/bára
HK er komið upp í fjórða sæti Olís-deildar kvenna eftir 32-28 sigur á Stjörnunni á heimavelli í kvöld. Leikurinn var fyrsti leikur 14. umferðar Olís-deildar kvenna. Jafnræði var með liðunum framan af en eftir stundarfjórðung leiddu svo heimastúlkur með þremur mörkum, 8-5. Þær héldu þeirri forystu inn í hálfleikinn og voru þremur mörkum yfir í hálfleik, 16-13. Þrátt fyrir áhlaup Stjörnunnar í síðari hálfleik stigu heimastúlkur ekkert af bensíngjöfinni og unnu að lokum fjögurra marka sigur. Jóhanna Margrét Sigurðardóttir skoraði tíu mörk úr ellefu skotum hjá HK og Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir bætti við sjö mörkum. Sara Sif Helgadóttir varði 12 skot (35% markvarsla). Hjá Stjörnunni var Stefanía Theodórsdóttir með átta mörk en þær Dagný Huld Birgisdóttir, Arna Þyrí Ólafsdóttir og Karen Tinna Demian skoruðu fjögur mörk hver. HK er í 4. sæti deildarinnar með fjórtán stig en Stjarnan er í því þriðja með fimmtán. Fjögur efstu liðin fara í úrslitakeppni en leiknar eru 21 umferð í deildarkeppninni.
Olís-deild kvenna Mest lesið Þurfti að biðja allt liðið afsökunar: „Þetta var ekkert illa meint“ Fótbolti Lést sex dögum eftir að hafa orðið meistari Sport Gamli maðurinn lét Littler svitna Sport Ein skærasta stjarna NBA tefldi við fólk úti á götu Körfubolti Sara Björk jafnaði tvisvar fyrir Al-Qadisiya Fótbolti Dagskráin í dag: Grindavík hefur göngu sína Sport Erlendur íþróttaannáll 2024: Bátnum ruggað, 2007 módelin og ótrúlegt hlaup Sport Atalanta missteig sig eftir ellefu sigra í röð Fótbolti Cecilía í liði ársins Fótbolti Segir Hákon betri en Flekken: „Þetta lék bara í höndunum á honum“ Enski boltinn Fleiri fréttir Hafsteinn fer á HM Íslensku strákarnir komnir í undanúrslit Elín og Ómar valin handknattleiksfólk ársins Töp hjá Íslendingaliðunum í Þýskalandi Melsungen enn á toppnum eftir sigur í Íslendingaslag Ólafi tvisvar vikið af velli og ekkert skorað síðustu tvær mínúturnar Viggó færir sig um set á nýju ári Stórsigur í toppslag og Melsungen með fjögurra stiga forystu Gísli fyrr heim í frí eftir árásina í Magdeburg Viktor Gísli góður þegar Wisla Plock fór á toppinn Negla Elínar Klöru eitt af flottustu mörkum EM Kolstad vann toppslaginn Dana áberandi í síðasta leik ársins Leik Gísla og félaga í Magdeburg frestað vegna árásarinnar Rosalegur hæðarmunur á liðsfélögum íslensku strákanna Lærisveinar Guðmundar fara í frí með góðan sigur að baki Arnór frá Gumma til Arnórs Ósáttir Harðarmenn stofnuðu kröfu í heimabanka dómara Staðfesta 10-0 sigur ÍBV gegn Haukum Íslendingaliðið heldur áfram í undanúrslit Lærisveinar Guðjóns Vals úr leik í bikarkeppninni „Jólin eru ekki alveg eins afslöppuð“ Þyrfti kraftaverk til að Ómar yrði með á HM Þetta eru strákarnir sem spila fyrir Ísland á HM Snorri kynnti HM-hóp Íslands Lofaði konunni að flytja ekki til Íslands Framarar slógu út bikarmeistarana Afturelding í bikarúrslitin Dana Björg næstmarkahæst í sigri í toppslag Þórir gæti orðið þjálfari ársins í tveimur löndum Sjá meira