Lukaku skoraði í níunda Evrópudeildarleiknum í röð þegar Inter fór áfram Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 10. ágúst 2020 20:54 Romelu Lukaku fagnar eftir að hafa komið Inter í 2-0 gegn Bayer Leverkusen. getty/Martin Meissner Inter er komið í undanúrslit Evrópudeildarinnar eftir 2-1 sigur á Bayer Leverkusen í kvöld. Leikið var í Düsseldorf. Nico Beralla kom Inter yfir með góðu skoti á 15. mínútu. Sex mínútum síðar kom Romelu Lukaku ítalska liðinu í 2-0. Hann fékk þá boltann frá Ashley Young og skoraði af harðfylgi. Lukaku hefur nú skorað í níu leikjum í Evrópudeildinni í röð. Hann er sá fyrsti sem afrekar það. Romelu Lukaku becomes the first player ever to score in nine straight Europa League/UEFA Cup matches! pic.twitter.com/SsgoANvkJo— ESPN FC (@ESPNFC) August 10, 2020 Lukaku hefur alls skorað 31 mark á sínu fyrsta tímabili hjá Inter, þar af sex í Evrópudeildinni. Kai Havertz minnkaði muninn í 2-1 á 25. mínútu eftir sendingu frá Kevin Volland. Þetta var væntanlega síðasta mark Havertz fyrir Leverkusen í bili en flest bendir til þess að hann sé á förum frá félaginu. Fleiri urðu mörkin ekki og Inter fagnaði sigri. Liðið mætir annað hvort Shakthar Donetsk eða Basel í undanúrslitunum sunnudaginn 16. ágúst. Sýnt verður beint frá öllum leikjunum sem eftir eru í Evrópudeildinni á Stöð 2 Sport. Keppni lýkur með úrslitaleiknum í Köln 21. ágúst. Stöð 2 Sport er hluti af Sportpakkanum. Evrópudeild UEFA
Sýnt verður beint frá öllum leikjunum sem eftir eru í Evrópudeildinni á Stöð 2 Sport. Keppni lýkur með úrslitaleiknum í Köln 21. ágúst. Stöð 2 Sport er hluti af Sportpakkanum.