Birkir spilaði allan seinni hálfleik þegar Inter slátraði Brescia Ísak Hallmundarson skrifar 1. júlí 2020 19:35 Sanchez skoraði eitt og lagði upp tvö í kvöld. getty/Mattia Ozbot Internazionale burstaði botnlið Brescia í ítölsku Seria-A deildinni í kvöld. Lokatölur 6-0 fyrir Inter en Birkir Bjarnason kom inn á í hálfleik fyrir Brescia. Það voru tveir fyrrum leikmenn Manchester United sem skoruðu fyrstu tvö mörk leiksins. Ashley Young skoraði fyrsta mark leiksins strax á 5. mínútu eftir stoðsendingu frá Alexis Sanchez og Sanchez skoraði síðan sjálfur úr vítaspyrnu á 20. mínútu. Danilo D'Ambrosio gerði þriðja mark Inter undir lok fyrri hálfleiks. Inter hélt áfram að raða inn mörkum í síðari hálfleik. Roberto Gagliardini skoraði snemma eftir hálfleik og á 83. mínútu bætti Christian Eriksen við marki. Antonio Candreva innsiglaði loks sigurinn á 88. mínútu. Brescia er á botni deildarinnar með 18 stig en Inter er í þriðja sæti með 64 stig, átta stigum á eftir toppliði Juventus. Ítalski boltinn
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti