Lífið

Raggi Sig og Alyona eignuðust dóttur

Andri Eysteinsson skrifar
Ragnar og Alyona eignuðust dóttur í dag.
Ragnar og Alyona eignuðust dóttur í dag. Instagram/alskur_

Landsliðsmaðurinn Ragnar Sigurðsson er orðinn faðir í annað sinn en honum og Alyonu, unnustu hans fæddist stúlka í dag.

Alyona greindi frá fæðingu stúlkunnar á Instagramsíðu sinni í dag og virðist hún hafa hlotið nafnið Mia. Parið er búsett í Kaupmannahöfn þar sem Ragnar leikur með knattspyrnuliðinu FC Kobenhavn en flugu þau hingað til Íslands þar sem að barnið fæddist.

Mia er fyrsta barn parsins saman en fyrir á Ragnar son. Í desember 2018 greindu þau Ragnar og Alyona frá trúlofun sinni en á þeim tíma lék Ragnar fyrir rússneska félagsliðið Rostov.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.