Tónlist

Föstu­dagspla­ylisti Markúsar Bjarna­sonar

Hjalti Freyr Ragnarsson skrifar
Markús á tónleikum á nýja Café Rósenberg í gærkvöldi.
Markús á tónleikum á nýja Café Rósenberg í gærkvöldi. Alda Rose Cartwright

Markús Bjarnason sem eitt sinn spilaði með hljómsveitina The Diversion Sessions á bak við sig hefur undanfarið komið fram undir eiginnafni sínu einu og sér.

Í lok síðasta árs kom út stuttskífan Counting Sad Songs sem var tekin upp á segulband í Stúdíó Sílói á Stöðvarfirði.

Hann hefur einnig verið í hljómsveitunum Skátum, Sofandi og Stroff, svo einhver dæmi séu nefnd. Indíbragur hefur iðulega verið á tónlistinni sem Markús kemur að og föstudagslagalistinn sem hann setti saman ber þess merki.

Listann kallar Markús „Leika sér á sumrin“ og lýsir hann hverju skrefi hans á eftirfarandi máta:

  • Óútskýranlegt töfrandi stuðgroove
  • bjöguð ást og lífsins sálarkreppa
  • geðheilsubjargandi melankolíu seiður 
  • íslenskt endofðeworldsamtbaraumsætastelpulag
  • repeat!

Markús segir listann einkennast af nostalgíu. „Alveg frá barnæsku, þegar ég hlustaði á Killing an Arab með The Cure á vitlausum hraða í vinylgræjum foreldra minna. Mér finnst það lag ennþá betra spilað of hratt!“

Hann minnist sérstaklega á lögin á listanum sem eru ný, Not með Big Thief og Sætar stelpur með Skoffíni. 

Big Thief segir Markús vera uppáhalds hljómsveitina sína. „Ég hef aldrei ferðast til útlanda bara til að fara á tónleika, en núna átti ég miða til að sjá þau spila í Kaupmannahöfn en þurfti að hætta við útaf faraldrinum.“

Skoffín segir hann vera nýja uppáhalds íslenska bandið sitt. „Tryllt live, geggjaðir textar, geggjuð orka og einhver undarlegur bræðingur af íslensku indírokkpönki með amerískum seventís rokkabillýáhrifum sem hittir mig í hausinn og hjartað frekar auðveldlega.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.