Lífið

Egill fagnaði fertugsafmælinu í fögrum hópi

Andri Eysteinsson skrifar
Egill Einarsson er vinamargur og var afmæli hans fagnað vel og lengi í gærkvöldi.
Egill Einarsson er vinamargur og var afmæli hans fagnað vel og lengi í gærkvöldi. Instagram/EgillGillz

Það var margt um manninn í Sjálandinu í Garðabæ í gærkvöldi þegar útvarpsmaðurinn, rithöfundurinn, plötusnúðurinn og einkaþjálfarinn Egill Einarsson fagnaði fjörutíu ára afmæli sínu í góðra vina hópi.

Mikill fjöldi gesta fagnaði með Agli í Garðabænum á fallegu sumarkvöldi og deildu myndum á Instagram undir merkinu #Skyri50.

Egill fagnaði fjörutíu ára afmæli í miðju samkomubanni en það virðist ekki hafa spillt gleðinni.

Pétur Jóhann Sigfússon steig á svið ásamt afmælisbarninu og söng afmælissönginn áður en Sauðkrækingarnir Sverrir Bergmann og Auðunn Blöndal sungu lagið Án þín. Egill, sem einnig er þekktur sem DJ Muscleboy steig einnig á svið og flutti smellinn Muscle Club.

Hér að neðan má sjá nokkrar af myndunum sem birtust undir merkinu #Skyri50 í gærkvöldi.

Félagar Egils úr útvarpsþættinum FM95Blö mættu að sjálfsögðu til að fagna með fyrirliða þáttarins.

Útvarpsmaðurinn Egill Ploder, Nökkvi Fjalar og Daði Laxdal voru flottir í tauinu.

Lína Birgitta lét sig ekki vanta í Sjálandið

Ágúst Bjarnason var duglegur á myndavélinni, hér er hann ásamt afmælisbarninu, Birni Braga Arnarsyni uppistandara og Páli Gunnlaugssyni.

Camilla var á bíl í gærkvöldi

Sporthúsfélagarnir Rikki G og Kiddi sameinaðir og glæsilegir

Ágúst náði landsliðsfyrirliðanum fyrrverandi á mynd.

Sara Ósk og Guðjón létu sig ekki vanta

Andrea skemmti sér vel í gærkvöldi

Einar og Ester fögnuðu 40 ára afmæli frumburðarins ásamt stórfjölskyldunni






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.