Skoðun

Um hljóm­plötur og stemningu

Þórhallur Valur Benónýsson skrifar

Að móta stemningu með tónlist er heimsþekkt aðferð sem stuðst er við í ýmsum útgáfum. Það er sama hvort um sé að ræða partý, listsýningar, íþróttaiðkun, búðarferðir eða svo margt annað þá sækist fólk í að stýra upplifun með tónlist. Áhrifin af réttum takti á réttum tíma geta verið töfrum líkust. Músíkin hjálpar til við slaka á, hún hjálpar til við að koma sér í gírinn, hún getur aukið einbeitingu og svo ótal margt annað. Tónlistarfólk setur mikinn kraft og metnað í gerð tónlistar sem er svo send út í samfélagið í þeirri von að einhver tengi við merkingu eða stemningu laganna. Með aukinni tæknivæðingu og tilkomu streymisveita hefur útgáfa tónlistar tekið miklum breytingum og nú þekkist að tónlistarmenn gefi jafnvel eingöngu út einstök lög og hafi gefið plötuútgáfu upp á bátinn. Þannig hefur vægi plötunnar sem listform misst ákveðið vægi í samfélaginu sem ég tel leiðinlega þróun. Plötuútgáfa sem á sínum tíma þótti mikið tilhlökkunarefni og mynduðust gjarnan langar raðir fyrir utan verslanir á útgáfudögum platna sem beðið hafði verið með mikilli eftirvæntingu. Fólk rauk svo rakleiðis að næsta tiltæka plötuspilara og renndi í gegnum plötuna. Í dag hafa streymisveitur gengið frá stemningunni sem fylgdi plötuútgáfu að ákveðnu leyti.

Tónlistarmenn hafa notað samfélagsmiðla og tengslanetið sitt til þess að búa til og viðhalda einhverri spennu fyrir plötuútgáfu en það höfðar ekki til fólks með sama hætti og áður, ég upplifi fáa sem ná upp einhverjum ofurspenningi fyrir plötuútgáfu nema þá kannski í besta falli hjá sínum allra uppáhalds listamönnum. Framboðið á góðri tónlist spilar líka mikið inn í þetta dæmi enda erfiðara að verða gíraður fyrir nýjum plötum þegar það kemur út geggjuð tónlist nánast daglega og allir hafa aðgengi að henni samstundis. Síðasta upplifun mín af raunverulegri gírun var þegar Gísli Pálmi gaf út samnefnda plötu árið 2015. Platan kom þá í sölu áður en hún varð aðgengileg á netinu en ekki allir höfðu aðgengi að CD-spilara þar sem Apple hafði þá hætt að hafa slíka innbyggða í tölvurnar sínar. Þannig gátu einungis bílaeigendur og tölvueigendur með diskadrifi spilað plötuna þegar hún mætti án þess að þurfa að halda heim á leið í plötuspilara. Á bílastæði skólans varð því hlustunarhittingur í nokkrum bílum, enda flaug orðið um gæði plötunnar hratt milli manna.

Ein afleiðinga stafrænu þróunarinnar og þess að gefa út stök lög frekar en heila plötu kann að vera minni hvati fyrir tónlistarfólk að virða plötur sem listform, en það tel ég mikla synd. Ég er einn af þeim sem elska að hlusta á plötur í gegn en mér finnst það besta leiðin til þess að tengjast sköpunarferli verksins og þeim áhrifum sem því er ætlað að hafa á hlustandann og ég reyni þannig að hlusta ekki of mikið á lög sem síðar eiga eftir að koma út á plötu. Ef marka má endurkomu vínylplatna þá er ljóst að það eru fleiri en ég sem vilja njóta platna sem heildarverks, þó svo að augljóst sé að plötuútgáfa stendur ekki undir sér í sömu mynd og áður. Megi plötuútgáfa lifa sem lengst og halda áfram að veita okkur innblástur, frið og halda uppi stemningu.

Höfundur er laganemi við Háskóla Íslands.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×