Erlent

Baskin eignast dýragarð Joe Exotic

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Joe Exotic og Carole Baskin áttu í áralöngum deilum. Exotic afplánar nú fangelsisdóm fyrir að hafa reynt að láta ráða Baskin af dögum.
Joe Exotic og Carole Baskin áttu í áralöngum deilum. Exotic afplánar nú fangelsisdóm fyrir að hafa reynt að láta ráða Baskin af dögum. Netflix

Alríkisdómari í Bandaríkjunum hefur komist að þeirri niðurstöðu að veita Carole Baskin, forstjóra dýraverndunarsamtakanna Big Cat Rescue, stjórn yfir dýragarði í Oklahoma sem eitt sinn var í eigu Joseph Maldonado-Passage, sem einnig er þekktur sem Joe Exotic eða einfaldlega Tígrisdýrakonungurinn.

Greint er frá þessu á vef Variety. Þar segir einnig að innan skamms verði allar eignir tengdar dýragarðinum, komnar í eigu Baskin. Joe Exotic og Baskin urðu afar þekkt á skömmum tíma með tilkomu heimildaþátta sem fjölluðu um líf og störf þess fyrrnefnda í heimi tígrisdýrahirða í Bandaríkjunum. Þættirnir veittu innsýn inn í heim sem áður hafði verið hulinn mörgum, og urðu gríðarlega vinsælir víðsvegar um heiminn.

Joe Exotic, sem nú afplánar fangelsisdóm fyrir að hafa reynt að fá leigumorðingja til að ráða áðurnefnda Baskin af dögum, eyddi stórum hluta ferils síns sem eigandi „framandi dýragarðs“ í að áreita Baskin í illdeilum sem sjást vel í heimildaþáttunum Tiger King. Exotic hélt því statt og stöðugt fram, í mörg ár, að Baskin hefði orðið fyrrum eiginmanni sínum, Don Lewis, að bana. Hann hvarf árið 1997. Árið 2002 var hann úrskurðaður látinn, en enginn niðurstaða hefur fengist í hvarf hans þar sem hann fannst aldrei.

Árið 2013 stefndi Baskin honum fyrir brot á höfundarréttarlögum. Svo fór að Exotic var gert að greiða tæpa milljón dollara til Baskin og dýraathvarfs hennar. Hann stóð þó ekki í skilum á upphæðinni.

Jeff Lowe, auðmanni sem bregður einnig fyrir í þáttunum og farið hefur með rekstur dýragarðsins síðan Exotic var dæmdur í fangelsi, hefur með dómsúrskurðinum verið gert að fjarlægja öll dýr úr garðinum innan 120 daga.


Tengdar fréttir

Cage leikur tígrisdýrakonunginn

Heimildaþættirnir Tiger King, sem fjalla að mestu leyti um hinn skrautlega fyrrum dýragarðseiganda Joe Passage-Maldonado betur þekktan sem Joe Exotic, fóru um heimsbyggðina eins og eldur um sinu fyrir nokkru.

Joe Exotic smitaður af kórónuveirunni

Hinn 57 ára gamli Joe Exotic, sem er mörgum kunnugur eftir vinsældir þáttanna Tiger King á Netflix, er smitaður af kórónuveirunn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×