Skoðun

Ferðagjöf upp Ártúnsbrekku og allan hringinn

Guðfinnur Sigurvinsson skrifar

Hugsum okkur ef Kringlan byði öllum viðskiptavinum verslunarmiðstöðvarinnar upp á 5000 kr.- gjafabréf sem fólk gæti nýtt á tilteknu tímabili. Mismunandi verslanir Kringlunnar væru samtímis með alls kyns tilboð sem hægt væri að nýta með gjafakortinu og ávinningur neytenda þannig aukinn. Hvort væri óhætt að ganga út frá því í framhaldinu að bílastæði Kringlunnar yrðu smekkfull eða galtóm?

Það er viss mælikvarði á hagsæld ef til er fólk sem finnst það ekki taka því að innleysa fimm þúsund krónur. Þá væri enn betra ef slíkt fólk gæti rafrænt framvísað gjafabréfi sínu til þeirra sem vilja nota það. Ef hver og einn gæti þannig að hámarki framvísað 15 slíkum gjafabréfum í verslunum Kringlunnar, samtals að andvirði 75.000 krónur, þá væri verslunarferðin aldeilis til fjár.

Nákvæmlega þetta er ríkisstjórnin að gera - með ferðagjöf til að efla mörg og mismunandi fyrirtæki sem þrífast undir hatti ferðaþjónustunnar. Tilgangurinn er að beina viðskiptum landans að fyrirtækjum í ferðaþjónustu sem blæðir um þessar mundir en ekki til að ríkisstyrkja ferðalög almennings upp í topp. Með ferðagjöfinni er almenningi einfaldlega treyst til að styðja þau fyrirtæki í ferðaþjónustu sem fólkið sjálft kann að meta. Valfrelsi fólksins í landinu er leið stjórnvalda til að dreifa þessum fjármunum. Með því að láta neytendur á markaði hafa valið fer fjármagnið þangað sem fólkið vill vera og þar með til lífvænlegra fyrirtækja sem keppast við að setja saman tilboð til að auka ávinning neytenda af ferðagjöfinni.

Aftur að fimm þúsund kallinum. Við hjónin fengum boð í sveitabrúðkaup í sumar og með því tilboð í hótelgistingu eina nótt með morgunverði fyrir tvo á 13.900 kr.- Við ætlum að nota ferðagjöf beggja og fáum þar með hótelgistinguna og morgunverðinn á 3900 kr.- Kaupgeta okkar eykst vegna ferðagjafarinnar og við höfum ríkari hvata til að nota aðra ferðaþjónustu, eins og baðlón á svæðinu, áður en heim er haldið. Þannig hagnast fleiri á heimsókn okkar en ella.

Það þarf ekki að fara langt til að gjöfin komi að gagni. Hægt er að efla ferðaþjónustu í næsta nágrenni eða heimabyggð en ferðagjöfina má almennt nýta í samgöngur, gistingu, veitingar og afþreyingu um allt land. Komum andvirði ferðagjafarinnar í vinnu og verjum íslenska ferðaþjónustu. Í krafti fjöldans getum við stækkað ferðagjöfina og myndað iðandi ferðakeðju upp Ártúnsbrekku, hringinn í kringum landið og aftur heim.

Eflum blómleg ferðaþjónustufyrirtæki sem við viljum að séu til staðar þegar millilandasamgöngur komast í eðlilegt horf og byggjum upp innlenda eftirspurn í ferðaþjónustu í leiðinni. Við erum alltaf sterkari saman.




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×