Innlent

Starfsmannafélag Garðabæjar skrifar undir kjarasamning

Kjartan Kjartansson skrifar
Flestir starfsmenn Garðabæjar eru í Starfsmannafélagi Garðabæjar.
Flestir starfsmenn Garðabæjar eru í Starfsmannafélagi Garðabæjar. Vísir/Vilhelm

Fulltrúar Starfsmannafélags Garðabæjar og launanefndar sveitarfélaganna skrifuðu undir rafrænan kjarasamning í dag. Rafræn atkvæðagreiðsla um samninginn hefst strax í kvöld en hann er sagður sambærilegur við kjarasamninga sem önnur sveitarfélög hafa gert við starfsmenn sína.

Í tilkynningu frá Starfsmannafélagi Garðabæjar kemur fram að kjarasamningurinn hafi verið samþykktur með fyrirvara um samþykki félagsmanna í atkvæðagreiðslu. Henni á að ljúka á hádegi á miðvikudag 22. apríl.

Flestir starfsmenn Garðabæjar eru félagsmenn í Starfsmannafélaginu fyrir utan kennara og marga háskólamenntaða starfsmenn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×