Markasúpa fyrir luktum dyrum á Spáni er Atalanta komst áfram

Anton Ingi Leifsson skrifar
Mestalla var tómur í kvöld.
Mestalla var tómur í kvöld. vísir/getty

Atalanta vann Valencia, 3-4, í síðari leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Atalanta fer því áfram samanlagt 8-4.

Josip Ilicic kom Atalanta yfir af vítapunktinum en Kevin Gameiro jafnaði. Aftur kom Josip Ilicic Atalnata yfir af vítapunktinum en aftur jafnaði Gameira.

Ferran Torres kom svo Valencia yfir á 67. mínútu en Josip Ilicic fullkomnaði þrennuna á 71. mínútu. Hann var ekki hættur og skoraði fjórða mark sitt og Atlanta á 82. mínútu.

Lokatölur 3-4 sigur Atalanta og samanlagt 8-4 en stórskemmtilegt lið Atalanta, sem getur ekki hætt að skora, er því komið áfram í 8-liða úrslitin.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira