Skutu þremur eldflaugum á loft Samúel Karl Ólason skrifar 9. mars 2020 02:46 Íbúar Suður-Kóreu horfa á frétt um eldflaugaskot nágranna þeirra í norðri. Myndefnið er ekki frá þessu tiltekna eldflaugaskoti. AP/Ahn Young-joon
Her Norður-Kóreu skaut í nótt þremur skammdrægum eldflaugum á loft. Viðræður einræðisríkisins og Bandaríkjanna og eldflauga- og kjarnorkuvopnaáætlanir Norður-Kóreu eru engar þessa dagana og hafa forsvarsmenn hersins heitið frekari vopnatilraunum. Herforingjaráð Suður-Kóreu segir eldflaugunum hafa verið skotið yfir Austurhaf í átt að Japan en allar tilraunir einræðisríkisins og eldflaugaskot eru í trássi við samþykktir öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Norður-Kórea hefur á undanförnum árum verið beitt umfangsmiklum refsiaðgerðum og viðskiptaþvingunum vegna tilrauna með kjarnorkuvopn og eldflaugar, sem eiga að bera þessi kjarnorkuvopn og það mögulega til Bandaríkjanna. Síðast skutu Kóreumenn eldflaugum á loft fyrir viku síðan og þá tveimur skammdrægum. Fyrir það hafði engri eldflaug verið skotið á loft um þó nokkuð skeið. Í fyrra voru þrettán tilraunaskot framkvæmd. Um áramótin hétu Norður-Kóreumenn því að gera tilraun með nýja tegund vopns á næstunni. Sérfræðingar segja mögulegt að þar sé um að ræða þróaða tegund langdrægra eldflauga sem gætu borið kjarnorkuvopn, eða nýja eldflaug sem hægt sé að skjóta úr kafbáti. Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, vill losna við viðskiptaþvinganir áður en viðræður um afvopnun hefjast á ný. Bandaríkin segja það hins vegar ekki koma til greina. Sérstaklega á sama tíma og Norður-Kórea ógni nágrönnum sínum og haldi ólöglegum vopnatilraunum áfram.
Norður-Kórea Suður-Kórea Mest lesið Kourani sjái ekki eftir neinu og eigi skilið sex til átta ár í fangelsi Innlent Ein leið í og úr hverfinu dragi úr öryggi íbúa Innlent Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Erlent Hlaut of þunga refsingu fyrir mistök Innlent Yfir 190 gestir Fabrikkunnar með nóróveiru síðasta sumar Innlent Býður þingmönnum að „fá hrollkaldan veruleikan í andlitið“ Innlent Gremja vegna golfbíla á meistaramóti Innlent „Ef þessi maður kemst út úr fangelsi mun hann drepa barnið mitt“ Innlent Engin gögn bendi til tengsla við Hamas Innlent Sjúklingur réðst á lækni sem fær ekki bætur frá ríkinu Innlent Fleiri fréttir Baktalaði Biden í golfi: „Gamla niðurbrotna skítahrúga“ Kristrún og félagar sækja atkvæði fyrir Verkamannaflokkinn Enn má pissa í sjóinn á Costa del Sol Uppsagnir á Skaganum og Bretar kjósa nýja valdhafa Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Bretar ganga að kjörborðinu Neil Gaiman sakaður um kynferðisofbeldi Trump eykur forskotið og Biden ekki á förum Þvertaka fyrir að Biden sé efins um framboð Ákærður fyrir árásina á Mette Frederiksen Ákærðir fyrir að hafa fellt tré með banvænum afleiðingum Maður á þrítugsaldri stunginn til bana í Kaupmannahöfn Gert að eyða gjafasæði vegna mistaka við merkingu Beryl við það að skella á Jamaíku Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Friðhelgin stórauki vald forsetans Ákvörðun um refsingu Trump frestað 87 talin af vegna troðnings Einn látinn og þúsundir án vatns og rafmagns Enn slasast tugir í ókyrrð Orbán hyggst óvænt heimsækja Úkraínu Í höndum Macron að koma í veg fyrir stórsigur Le Pen Hæstiréttur segir Trump njóta friðhelgi að hluta Einn helsti rithöfundur Albaníu er allur Strangrúaðir mótmæltu herskyldu Varað við fellibylnum Beryl sem er á leið yfir Karíbahafið Kínversk geimflaug hrapaði til jarðar Flestir á því að Biden valdi ekki starfinu Sögulegur dagur fyrir frönsku þjóðina að baki „Ástæða til að hafa áhyggjur“ Sjá meira