Keppni í tennis frestað fram á haust Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 16. maí 2020 16:15 Mögulega fáum við að sjá Serenu Williams aftur á tennisvellinum í ágúst. vísir/getty
Öllum stærstu mótaröðunum í tennis hefur verið frestað þangað til í ágúst hið minnsta. Ekkert atvinnumannamót hefur farið fram síðan í byrjun marsmánaðar. Á þetta við um bæði ATP og WTA-mótaraðirnar. Í fyrsta skipti síðan í síðari heimsstyrjöldinni var Wimbledon-mótinu í Englandi frestað en það átti að hefjast þann 29. júní næstkomandi. Þá var Opna franska meistaramótinu einnig frestað fram á haust. Sem stendur er bandaríska meistaramótið sem fram fer í New York undir lok ágústmánaðar það næsta sem keppt verður á en dagsetning þess er sú sama og upprunalega var reiknað með. Verður það því fyrsta mótið sem keppt verður á síðan kórónufaraldurinn skall á heimsbyggðinni. Ástandið í New York er þó ekki gott og ef það skánar ekki gæti verið að mótaröðunum verði frestað enn frekar. „Líkt og aðdáendur, keppendur og gestgjafar um allan heim þá erum við einnig vonsvikin vegna áhrifanna sem faraldurinn hefur á mótaröðina,“ sagði Andrea Gaudenzi, formaður ATP-mótaraðarinnar í viðtali við BBC.
Íþróttir Tennis Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið „Það var erfitt að fela vonbrigðin“ Sport Bannar eiginkonurnar ef þeir vinna leikinn Fótbolti Íris fer á Ólympíuleikana í París Sport „Miklar tilfinningasveiflur sem tóku við“ Handbolti „Ég bað um að taka fimmta vítið“ Sport Rekinn í vetur en ráðinn á ný Körfubolti Fyrrum heimsmeistari skotinn til bana Sport Disney stjórinn að kaupa fótboltafélag með eiginkonunni Fótbolti Semja við Bellingham Formúlu 1 heimsins Formúla 1 KKÍ gefst upp á GameDay kerfinu Körfubolti Fleiri fréttir Jontay Porter fer fyrir dóm og mun játa veðmálasvindlið Andrea svekkir sig ekki á mannlegum mistökum Úlfurinn snýr aftur til Kiel KKÍ gefst upp á GameDay kerfinu Liðsfélagar Helga skjóta hann í hausinn: „Ég þarf að ræða við þá eða drulla mér í burtu bara“ „Eru örugglega að leita sér að einhverju fersku“ Rekinn í vetur en ráðinn á ný Disney stjórinn að kaupa fótboltafélag með eiginkonunni Fyrrum heimsmeistari skotinn til bana Semja við Bellingham Formúlu 1 heimsins Hlín tilnefnd sem sú besta í júní Segja að Southgate gæti skipt um leikkerfi Verður áfram hjá Manchester United „Miklar tilfinningasveiflur sem tóku við“ Sjáðu sextán ára stelpu koma meisturunum til bjargar Bannar eiginkonurnar ef þeir vinna leikinn Níu ára stelpa vann gull á X-leikunum „Það var erfitt að fela vonbrigðin“ Foden finnur til með Southgate Telur sig geta platað Klopp til að taka við Bandaríkjunum Íris fer á Ólympíuleikana í París Dagskráin í dag: Sumarmótin og golf Lakers ræður reynslubolta með Reddick „Mér finnst ég nógu góður til þess að spila í þessari deild“ „Ég bað um að taka fimmta vítið“ Uppgjörið, viðtöl og myndir: Víkingur - Stjarnan 1-1 (5-4) | Víkingar í úrslit enn á ný Enskir dómarar á stórleikjum föstudagsins „Þurfum bara að dekka í svona leikatriðum“ Uppgjörið: Valur - Þróttur 1-0 | Dramatískur sigur Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Þór/KA - FH 0-1 | Ída Marín tryggði sigur gestanna Sjá meira