Erlent

Trump líkir sér við skipstjórann á Bounty í deilum við ríkisstjóra

Kjartan Kjartansson skrifar
Trump hélt því fram að hann hefði öll völd á hendi sér hvað varðar afléttingu aðgerða gegn kórónuveirunni á upplýsingafundi í Hvíta húsinu í gær. Hann hefur ítrekað magnað upp deilur við ríkisstjóra úr Demókrataflokknum í miðjum faraldrinum.
Trump hélt því fram að hann hefði öll völd á hendi sér hvað varðar afléttingu aðgerða gegn kórónuveirunni á upplýsingafundi í Hvíta húsinu í gær. Hann hefur ítrekað magnað upp deilur við ríkisstjóra úr Demókrataflokknum í miðjum faraldrinum. Vísir/EPA

Deilur Donalds Trump Bandaríkjaforseta við ríkisstjóra sem hafa tekið upp samráð um viðbrögð við kórónuveirufaraldurinn héldu áfram í dag. Líkti forsetinn sér meðal annars við skipstjórann á bresku skútunni Bounty sem var settur af í uppreisn skipverja.

Ríkisstjórar nokkurra ríkja, þar á meðal New York, ræða nú saman um hvernig aðgerðum til að hefta útbreiðslu faraldursins verður aflétt. Trump brást illa við þeim umleitunum ríkisstjóranna í gær og hélt því fram rakalaust að hann hefði sjálfur „algert“ vald til að ákveða hvenær aðgerðunum verður aflétt á blaðamannafundi þar sem forsetinn skeytti skapi sínu á fréttamönnum.

Stjórnarskrá Bandaríkjanna felur einstökum ríkjum að tryggja allsherjarreglu og öryggi íbúa sinna, þvert á yfirlýsingar Trump um allsherjarvöld forsetans. Áður hefur Trump sagt ríkisstjórum að bjarga sér sjálfum með neyðarbúnað vegna faraldursins og skipað Mike Pence, varaforseta sem hefur stýrt viðbragðsteymi Hvíta hússins, að tala ekki við ríkisstjóra sem Trump finnst ekki sýna sér nægilega mikið þakklæti.

Trump hélt áfram að troða illsakir við ríkisstjórana í dag og líkti þeim við skipverja á bresku skútunni HMS Bounty sem gerðu uppreisn gegn skipstjóranum William Bligh árið 1789. Forsetinn sagði í tísti að kvikmyndin „Uppreisnin á Bounty“ væri ein uppáhaldsmyndin sín.

„Gömul og góð uppreisn við og við er spennandi og endurnærandi að fylgjast með, sérstaklega þegar uppreisnarmennirnir þurfa svo mikið frá skipstjóranum. Of auðvelt!“ tísti Trump og virtist þar með líkja sjálfum sér við skipstjórann sem var illmennið í þremur Hollywood-myndum sem voru gerðar um uppreisnina á Bounty á síðustu öld.

Tímaritið Vanity Fair bendir á að Bligh skipstjóri hafi jafnframt verið talinn hrokafullur, illkvittinn, vænisjúkur og hrottafenginn. Trump hafi annað hvort ruglast á kvikmyndum eða hann þekki hreinlega ekki til myndarinnar.

Segir forsetann snapa slag

Sérstaklega beindi Trump þó spjótum sínum að Andrew Cuomo, ríkisstjóra New York, sem er demókrati. Fullyrti forsetinn að Cuomo hringdi í sig daglega eða jafnvel á hverri klukkustund til þess að „grátbiðja um allt“, þar á meðal sjúkrahús, rúm, öndunarvélar fyrir New York sem er miðpunktur faraldursins.

Cuomo gaf lítið fyrir fullyrðingar Trump á blaðamannafundi í dag. Hann taldi Trump reyna að kynda undir átökum við ríkisstjórana en sjálfur hefði hann ekki áhuga á að taka þátt í þeim.

Sjá einnig: Trump-stjórnin sögð hafa vanrækt undirbúning um mánaðaskeið

Á upplýsingafundi í Hvíta húsinu í kvöld reyndi Trump enn að láta sem að það væri í hans höndum á ákveða hvenær einstök ríki afléttu aðgerðum sínum. Sagðist hann ætla að „leyfa“ hverjum og einum ríkisstjóra að aflétta höftum þegar þeir vildu. Hann ætlaði að gera ríkisstjórana „ábyrga“ og fylgjast grannt með þeim.

Alríkisstjórn Trump forseta hefur verið sökuð um að hafa trassað undirbúning fyrir faraldur í Bandaríkjunum. Trump hefur hreykt sér af því að hafa takmarkað ferðalög frá Kína snemma en ríkisstjórn hans nýtti ekki tímann sem sú aðgerð keypti henni til þess að birgja sig upp af nauðsynlegum búnaði eða hefja víðtæka skimun fyrir veirunni.

Trump hefur hafnað því alfarið að axla ábyrgð á viðbrögðum alríkisstjórnar.

„Ég tek alls enga ábyrgð,“ sagði Trump á blaðamannafundi í síðasta mánuði.


Tengdar fréttir

Trump-stjórnin sögð hafa vanrækt undirbúning um mánaðaskeið

Um tveir mánuðir liðu frá því að Bandaríkjastjórn fékk fyrstu upplýsingarnar um kórónuveirufaraldurinn í Kína þar til alríkisstjórnin greip til umtalsverðra aðgerða til að hefta útbreiðsluna. Afneitun og vanvirkni í röðum æðstu ráðamanna er sögð hafa átt þátt í að tímanum sem hefði getað nýst í undirbúning var kastað á glæ.

Níu ríki Bandaríkjanna undirbúa afléttingu hafta

Níu ríki Bandaríkjanna tilkynntu í dag að vinna sé hafin við að undirbúa afléttingu þeirra hafta sem sett hafa verið til að koma í veg fyrir útbreiðslu kórónuveirufaraldursins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×