Innlent

Björgunarsveitir aðstoða við sýnaflutninga vegna veðurs

Sylvía Hall skrifar
Mikið hefur mætt á björgunarsveitum landsins í dag enda vonskuveður um allt land. Spáð er verra veðri á morgun og eru Íslendingar hvattir til þess að halda sig heima.
Mikið hefur mætt á björgunarsveitum landsins í dag enda vonskuveður um allt land. Spáð er verra veðri á morgun og eru Íslendingar hvattir til þess að halda sig heima. Landsbjörg

Björgunarsveitir á Vestfjörðum, Norðurlandi vestra og Austurlandi hafa aðstoðað við sýnaflutninga í dag vegna veðurs, en víða á landinu er aftakaveður og hefur Veðurstofa Íslands gefið út appelsínugula viðvörun fyrir landið allt utan höfuðborgarsvæðisins á morgun.

Björgunarsveit Hornafjarðar var ein þeirra björgunarsveita sem aðstoðaði við sýnaflutning í dag. Friðrik Jónas Friðriksson, formaður svæðisstjórnar björgunarsveitarinnar á Hornafirði, segir flutninginn hafa gengið vel þrátt fyrir veður.

„Það var brjálað veður en margar hendur unnu létt verk og það lögðust margir á verkið, bæði sjúkraflutningar, lögregla og björgunarsveit,“ segir Friðrik í samtali við Vísi. Ákveðið hafi verið að flytja sýnin í dag þar sem ekki er útlit fyrir að slíkt myndi takast á morgun, en þó svo að veðrið sé slæmt í dag er spáð enn verra veðri á morgun.

„Við þurftum að fá aðstoð björgunarsveitarinnar Kára í Öræfum og Dagrenningar á Hvolsvelli við þennan flutning, því veðrið var komið í 50 metra og svo var orðið brjálað undir Eyjafjöllunum.“

Landhelgisgæslan flutti sýnin yfir djúpið 

Fyrir vestan þurftu bjorgunarsveitir að flytja sýni yfir Steingrímsfjarðarheiði þar sem lítið skyggni og vonskuveður var.

Landhelgisgæslan flutti svo sýnin yfir djúpið þar sem björgunarsveitarfólk tók á móti þeim og skutlaði þeim landleiðina áfram til móts við þá sem flytja þau í bæinn. Í myndbandinu hér að neðan má sjá aðstæður á Steingrímsfjarðarheiði í dag. 

Klippa: Björgunarsveitir aðstoða við sýnaflutninga

Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir margar björgunarsveitir hafa tekið þátt í flutningum í dag. Þá hafi einnig verið mörg útköll vegna bíla sem lentu í vandræðum vegna veðurs.

Sjá einnig: Hafa þurft að aðstoða fjölda Íslendinga á ferðalagi um Suðurland

Hann segir ekkert ferðaveður vera á landinu, skyggni sé víða slæmt og mikið hvassviðri. Hann hvetur fólk til þess að fylgja fyrirmælum Víðis Reynissonar yfirlögregluþjóns og halda sig heima.

„Mjög mikilvægt að við tökum á þessu saman, við erum víst öll saman í þessu,“ segir Davíð.


Tengdar fréttir

Appelsínugul viðvörun um land allt

Veðurstofa Íslands hefur gefið út appelsínugula viðvörun fyrir landið allt, nema höfuðborgarsvæðið, vegna vonskuveðurs á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×