Innlent

Svona var kynningarfundur ráðherra fyrir námsmenn

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Lilja Alfreðsdóttir og Ásmundur Einar Daðason munu kynna aðgerðirnar.
Lilja Alfreðsdóttir og Ásmundur Einar Daðason munu kynna aðgerðirnar. Vísir/Vilhelm

Boðað hefur verið til blaðamannafundar í dag þar sem aðgerðir stjórnvalda er snúa að sumarnámi í framhalds- og háskólum, sem og atvinnumöguleikum námsmanna, verða kynntar.

Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra munu kynna aðgerðirnar, sem boðaðar eru vegna faraldurs kórónuveiru.

Kynningin fer fram í húsakynnum Háskólans í Reykjavík klukkan 13 í dag og verður í beinni útsendingu á Vísi, Stöð 2 Vísi en jafnframt í beinni textalýsingu að neðan.

Uppfært: Fundinum er lokið en upptöku frá honum má sjá að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×